Biðlistagreiðslur
Til að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur (barn er orðið 12 mánaða) og þangað til barn fær vistun í leikskóla geta foreldrar fengið biðlistagreiðslur.
Biðlistagreiðslur til að brúa bilið
Til að brúa bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur (barn er orðið 12 mánaða) og þangað til barn fær vistun í leikskóla geta foreldrar fengið biðlistagreiðslur. Upphæðin miðast við almenna niðurgreiðslu hjá dagforeldrum fyrir 8 stunda vistun.
Þú sækir um biðlistagreiðslur á Þjónustugátt Garðabæjar.
Skilyrði
- Barn þarf að vera orðið 12 mánaða.
- Barn þarf að vera á biðlista eftir leikskóladvöl.
- Barn má ekki vera með niðurgreiðslur frá Garðabæ vegna vistunar hjá dagforeldri.
Útborgun á biðlistagreiðslum
- Greiðslur hefjast frá þeim degi sem umsókn er samþykkt og eru ekki afturvirkar.
- Greiðsla er borguð fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir síðastliðinn mánuð.
- Miðað er við mánuðinn sem barnið er fætt.
Dæmi: Barn sem er fætt 27. júní fær greiðslu fyrir júní ári seinna. - Ef barni býðst leikskóladvöl falla greiðslur niður frá þeirri dagsetningu sem barn byrjar í leikskóla eða boði um leikskóladvöl er hafnað.
- Ef barn byrjar hjá dagforeldri falla greiðslur niður.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.