Fréttir og tilkynningar
Fréttir24.03.2026Nýr vefur Garðabæjar kominn í loftið
Ný vefsíða Garðabæjar hefur verið tekin í gagnið. Vefurinn fór í loftið þann 24. mars og mun gegna lykilhlutverki í upplýsingagjöf og þjónustu við íbúa. Nýi vefurinn opnar í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins.
Fréttir16.03.2026Samkomulag um nýtt hjúkrunarheimili við Vetrarmýri undirritað
„Þetta er afar gleðilegur áfangi,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar um nýtt hjúkrunarheimili með 100 hjúkrunarrýmum sem áformað er að opna í Vetrarmýri árið 2029.
Fréttir12.03.2026Fimmtugir komu saman og fögnuðu
Hópur Garðbæinga sem á það sameiginlegt með Garðabæ að fagna 50 ára afmæli á árinu 2026 kom saman í Sveinatungu á Garðatorgi og fagnaði tímamótunum.
Fréttir09.03.2026Íbúaþing eldra fólks í Garðabæ fer fram 11. mars
Íbúaþing um málefni eldra fólks í Garðabæ verður haldið miðvikudaginn 11. mars í Sjálandi. Skráning á þingið gekk vel.
Fréttir06.03.2026Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Garðabær, Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Seltjarnarnesbær og Kjós – ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttafélögum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026.
Fréttir06.03.2026Íbúafundur um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti
Garðabær býður íbúum á fund um stöðu uppbyggingar í Urriðaholti og áform um lok hennar.
Fréttir06.03.2026Innritun í leikskóla Garðabæjar fer fram 25. og 26. mars
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir haustið fer fram 25. og 26. mars. Við minnum foreldra á að yfirfara umsóknir og uppfæra eftir þörfum fyrir 23. mars, líkt og áður verður biðlisti frystur í allt að 30 daga til að hægt sé að vinna úr umsóknum.
Fréttir06.03.2026Á flakki um Garðabæ
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar verður á flakki um bæinn í mars þar sem hann býður upp á opna viðtalstíma fyrir íbúa.
Fréttir05.03.2026Metþátttaka í ungmennaþingi Barnaheilla í Garðabæ og Hafnarfirði
Metþátttaka var í ungmennaþingi Barnaheilla í Garðabæ og Hafnarfirði. Þátttakendur voru úr efstu bekkjum Garðaskóla í Garðabæ, og Lækjarskóla, Setbergsskóla, Víðistaðaskóla, Öldutúnsskóla og Áslandsskóla í Hafnarfirði, ásamt nemendum úr Fjölbrautaskóla Garðabæjar og Flensborg.
Fréttir03.03.2026Fyrirlestur Péturs Ármannssonar um tímamótahús í Garðabæ
Hérna má horfa á áhugaverðan fyrirlestur Péturs Ármannssonar sem hann hélt í Hönnunarsafni Íslands 15. febrúar. Í fyrirlestrinum fjallaði hann um valin hús í Garðabæ frá ólíkum tímaskeiðum sem mörg sættu tíðindum í þróun byggingarlistar hér á landi
Fréttir03.03.2026Enginn vinnudagur eins
„Starfið er fjölbreytt, lærdómsríkt og afar gefandi,“ segir yfirflokkstjóri umhverfishópa. Auglýst er eftir starfsmönnum til starfa í umhverfishópum Garðabæjar.
Fréttir27.02.2026Kaldavatnslaust í Hrísmóum og á Garðatorgi 3. mars
Lokað verður fyrir kalt vatn í Hrísmóum og á Garðatorgi að hluta frá klukkan 10:00 til 12:00 á þriðjudaginn. 3. mars.
Fréttir27.02.2026Afmælisveisla fyrir íbúa fædda 1976
Garðabær býður öllum þeim íbúum sem fagna 50 ára afmæli á þessu ári í afmælisboð.
Fréttir27.02.2026Langir fimmtudagar á bókasafninu í mars
Bókasafn Garðabæjar mun bjóða gestum og gangandi upp á fjölbreytt erindi á löngum fimmtudögum í mars.
Fréttir25.02.2026Innritun í grunnskóla í Garðabæ fyrir skólaárið 2026-2027
Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2020) og 8. bekk (f. 2013) fer fram dagana 2.- 10. mars. Innritað er í gegnum island.is og í þjónustugátt bæjarins verður hlekkur í innritunina á island.is. Forráðafólki og væntanlegum nemendum gefst kostur á að koma í heimsókn í grunnskólana í Garðabæ frá 2. -10. mars.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.