Endurbætur vegna rakaskemmda
Garðabær vinnur eftir ákveðnum verkferlum ef grunur vaknar um myglu í húsnæði og mannvirkjum bæjarins.
Verkferlið
Verkfræðistofan Mannvit er til ráðgjafar varðandi sýnatökur, úrbætur og aðgerðir.
Verkferlið skiptist í 3 skref:
- Ábending berst og skoðuð nánar.
- Úttekt framkvæmd á húsnæðinu.
- Aðgerðaráætlun virkjuð þegar grunur er staðfestur.
Fræðsla og leiðbeiningar um myglu
Lykillinn að því að koma í veg fyrir myglu er að hafa stjórn á raka. Mygla þrífst best í röku umhverfi og er vöxtur hennar háður fjórum þáttum:
- Æti
- Lofti
- Viðunandi hitastigi
- Vatni
Gæði innilofts
Flestir eyða meirihluta af tíma sínum innandyra og því eru gæði innilofts mikilvæg. Margir áhrifaþættir á inniloft verða til vegna raka og ónægrar loftunar. Of mikill raki, á nánast hvaða yfirborði sem er innandyra, getur leitt til örveruvaxtar, svo sem myglu, sveppavaxtar og bakteríuvaxtar.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.