Beint í efni

Ábend­ing um bæj­ar­lista­mann Garða­bæj­ar 2022

Fréttir
04.02.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum fólks eða félagasamtaka um hugsanlegan bæjarlistamann Garðabæjar 2022. 

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum fólks eða félagasamtaka um hugsanlegan bæjarlistamann Garðabæjar 2022. Í fyrra voru það leikarahjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors sem útnefnd voru bæjarlistamenn. Ábendingar skulu gjarnan vera rökstuddar og berist menningarfulltrúa Garðabæjar fyrir 19. mars n.k. á netfangið olof@gardabaer.is

Útnefning bæjarlistamanns fer fram við hátíðlega athöfn í vor eins og venja er. Þá er jafnframt listamanni í Garðabæ veitt heiðursviðurkenning fyrir ómetanlegt starf í þágu menningar og ungmennum veittur styrkur við sama tilefni.

Ábending um bæjarlistamann Garðabæjar 2022 - Garðabær