Beint í efni

Æf­ingar hefj­ast á ný í Mið­garði

Fréttir
03.11.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Á grundvelli niðurstaðna úr loftgæðamælingum og vegna þess að góð loftræsting með hröðum loftskiptum er í húsinu er stefnt að því að hefja æfingar á ný í Miðgarði mánudaginn 7. nóvember nk.

Síðustu vikur hafa æfingar og kennsla á gervigrasinu í íþróttahúsinu Miðgarði legið niðri meðan beðið var niðurstaðna úr loftgæðamælingum og sýnatökum eftir að það lá fyrir að sveppagró hafði greinst í gúmmíundirlagi undir gervigrasi í byrjun október.

Niðurstöður loftgæðamælinga innandyra sýna að loftgæði eru vel innan skilgreindra viðmiðunarmarka og til samanburðar var einnig tekið sýni úr útilofti. Í vikunni fór fram frekari sótthreinsun innandyra á gervigrasinu og áfram verður regluleg sótthreinsun í húsinu.

Á grundvelli niðurstaðna úr loftgæðamælingum og vegna þess að góð loftræsting með hröðum loftskiptum er í húsinu er stefnt að því að hefja æfingar á ný í Miðgarði mánudaginn 7. nóvember nk.
Um leið mun frístundabíllinn í Garðabæ aftur keyra í Miðgarð skv. leiðarkerfi bílsins. Einnig er vakin athygli á að aðkoma að Miðgarði er um Vetrarbraut frá Vífilsstaðavegi þar sem gatnamót Vetrarbrautar og Hnoðraholtsbrautar eru lokuð vegna gatnagerðar tímabundið í nóvember. Gangandi vegfarendur geta farið um hjáleið. Sjá kort af leiðum að Miðgarði í tilkynningu hér.

Áfram verður fylgst vel með loftgæðum með endurteknum mælingum og sýnatökum auk þess sem sótthreinsun verður regluleg og eftir sem áður verður gætt að öryggi þeirra sem æfa í húsinu.
Gert er ráð fyrir að á einhverjum tímapunkti þurfi að fletta gervigrasi upp og skipta um gúmmíundirlag og verið er að vinna aðgerðarplan um umfang þess verks. 

Æfingar hefjast á ný í Miðgarði - Garðabær