Beint í efni

Arn­ar­land: Frest­ur til að skila inn at­huga­semd­um fram­lengd­ur til 20. jan­ú­ar

Fréttir
23.12.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Frestur til að skila inn athugasemdum um tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands hefur verið framlengdur til 20. janúar

Frestur til að skila inn athugasemdum um tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands hefur verið framlengdur til 20. janúar

Haldinn var opinn íbúafundur um nýja tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands þann 4. desember. Á fundinum var farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið á skipulaginu frá fyrri tillögum. Kynninguna má sjá hér.

Arnarland-fundur

Frá opnun íbúafundi um nýja tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands, 4. desember.

 

Í Arnarlandi er áhersla lögð á öflugt og líflegt borgarumhverfi sem styrkir nærumhverfið og bætir lífsgæði þeirra sem búa og starfa á svæðinu sem og í nálægð við það. Þar er gert ráð fyrir blöndu af íbúðum, ýmissi nærþjónustu og heilsuklasa þar sem áhersla er á aðsetur fyrir fjölbreytt fyrirtæki tengd heilsu og hátækni.

Tillögur að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Arnarlands eru aðgengilegar á vef Garðabæjar og í skipulagsgátt. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillögurnar.

Frestur til að skila inn athugasemdum hefur verið framlengdur og rennur út 20. janúar 2025.

Skila skal athugasemdum rafrænt í gegnum vef skipulagsgáttar eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.

Arnarland: Frestur til að skila inn athugasemdum framlengdur til 20. janúar - Garðabær