Beint í efni

Betri teng­ing á milli hest­húsa­hverfa í Garða­bæ og Hafn­ar­firði

Fréttir
10.01.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Framkvæmdir við nýjan reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði eru hafnar. Um 2,5 km langan stíg er að ræða. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.

Framkvæmdir við nýjan reiðstíg á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði eru hafnar. Um 2,5 km langan stíg er að ræða.

Nýr reiðstígur liggur frá Grunnuvatnaskarði um Ljóskollulág og niður Vífilsstaðahlíð og tengist þar reiðstíg í Urriðakotshrauni. Með honum fæst tenging yfir í Hafnarfjörð um núverandi reiðgötur við Smyrlabúð.

Þessi reiðstígur er liður í uppbyggingu á stígakerfi í upplandi Garðabæjar. Nýr stígur kemur í staðin fyrir reiðstíginn sem nú liggur með fram Flóttamannavegi frá Smalaholti að bæjarmörkum við Hafnarfjörð, en eldri stígur verður af öryggisástæðum aflagður og nýja tengingin kemur í hans stað.

Á kafla fer stígurinn í gegnum friðland Vífilsstaðavatns en liggur þá að mestu um lúpínubreiðu eða mel. Framkvæmdir eru gerðar í samráði við Náttúruverndarstofnun.

Fyrirhuguð verklok eru vor 2025.

Meðfylgjandi er mynd sem sýnir legu nýs reiðstígs.

Reidstigur-yfir-Vifilsstadahlid

Betri tenging á milli hesthúsahverfa í Garðabæ og Hafnarfirði - Garðabær