Beint í efni

Breyt­ingar á dval­ar­tíma leik­skóla­barna

Fréttir
26.01.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Beytingarnar eru gerðar með það að markmiði að bæta enn frekar skipulag og starfsumhverfi leikskóla þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og vellíðan starfsfólks. 

Í haust kynnti Garðabær breytingar á starfsemi leikskóla bæjarins. Breytingarnar eru gerðar með það að markmiði að bæta enn frekar skipulag og starfsumhverfi leikskóla þannig að tryggja megi stöðugleika í starfinu, farsæld barna og vellíðan starfsfólks. Þegar hafa farið fram nokkrir foreldrafundir þar sem þessar breytingar voru kynntar.

Liður í þessu eru breytingar á opnunartímum leikskólanna auk þess sem dvalartími verður að hámarki 40 klukkustundir á viku. Foreldrar/forráðafólk þurfa að skoða hvernig þau vilja hafa daglega viðveru barna sinna fyrir mánuðinn og skrá það inn í nýtt leikskólakerfi „Vala – leikskóli“ sem tekið verður í notkun 15. febrúar n.k.  Nákvæmar leiðbeiningar um skráningu í Völu koma í byrjun febrúar. 

Breytingar á dvalarsamningum

Leikskólastjórar munu afhenda foreldrum nýja dvalarsamninga til undirritunar í leikskólunum fyrir mánaðarmótin febrúar-mars og eldri samningum verður sagt upp. Allir foreldrar fá nýjan dvalarsamning jafnvel í þeim tilfellum þar sem dvalartími barna breytist lítið.

Breytingar á dvalartíma

Foreldrar/forráðafólk þurfa að skoða hvernig dvalartíma barna verður háttað– það er hvenær börnin mæta að morgni og hvenær þau ljúka leikskóladeginum. Þetta getur verið breytilegt.

Það sem þarf að hafa í huga varðandi skráningar áður en Vala verður tekin í gagnið er að:

  • Skráningar á dvalartíma í nýju kerfi fara fram á tímabilinu 15.-20. febrúar.
  • Breytingarnar taka gildi 1. mars 2024 samkvæmt nýrri gjaldskrá.
  • Foreldrar/forráðafólk þurfa að hafa í huga merkja við í Völu hvort barnið verður til kl. 14 í leikskólanum á föstudögum eða lengur. Þetta er í samræmi við breyttar áherslur í starfsumhverfi leikskólanna.
  • Með þessu breytta fyrirkomulagi er hægt að hafa dvalartíma mismunandi langan innan vikunnar og á milli vikna.
  • Hámarks dvalartími er 40 stundir á viku og lágmarks dvalartími er 20 tímar (meðaltal fjögurra vikna).

Dæmi:

  1. Ef barn dvelur 37 klst. á viku þá getur skráningin verið 7 tímar á mánudögum, 8 tímar á þriðjudögum, 8 tímar á miðvikudögum, 8 tímar á fimmtudögum og 6 tímar á föstudögum.
  2. Ef barn dvelur 40 klst. á viku í leikskóla getur skráning verið 9 klukkustundir fyrir fjóra daga og fjórir tímar fimmta dag vikunnar.
  3. Aðra vikuna getur barn dvalið 42 klukkustundir en þá næstu 38 klukkustundir.
  • Leikskólar í Garðabæ koma til með að loka kl. 16:30 mánudaga til fimmtudaga og kl. 16 á föstudögum frá 1. mars.
  • Fyrir 20. febrúar 2024 þarf að vera búið að láta vita hvernig dvalartíma barna verður háttað í marsmánuði.
  • Ef breytingar verða á dvalartíma barna á milli mánaða þarf að gera breytingu fyrir 20. hvers mánaðar en að öðrum kosti flyst hún á milli mánaða óbreytt.
  • Aðeins þarf að skrá breytingar milli mánaða. 

Skóladagatal

Breytingar á skóladagatali 2023-2024 verða kynntar í janúar. 

Helstu breytingar eru:

  • Leikskólar í Garðabæ loka í Dymbilvikunni, en það þýðir að dagana 25.-29. mars verða leikskólar í Garðabæ lokaðir.
  • Skipulagsdagur leikskóla verður 23. Febrúar. Þá eru allir leikskólar lokaðir.
  • Gert er ráð fyrir því að leikskólabörn séu í leyfi 19.-22. febrúar þegar vetrarfrí er í grunnskólum. Þeir foreldrar sem ætla að nýta þjónustuna þurfa að skrá börn í dvöl í samráði við leikskólastjóra. Leikskólagjöld eru felld niður ef börnin eru í fríi alla dagana

 

Garðabær þakkar fyrir skilninginn á meðan innleiðingin á þessu nýja kerfi gengur í garð og vonum að þessar breytingar muni styrkja gott leikskólaumhverfi enn frekar.

Ef einhverjar spurninga vakna hafið þá samband við leikskólastjóra á ykkar leikskóla. 

Hér má lesa nánar um breytingarnar:

Spurt og svarað um leikskólamál | Garðabær (gardabaer.is)

Opnunartími leikskóla Garðabæjar frá 1. mars 2024: 

 

 MánudagurÞriðjudagur  Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
 7.30-16.30 7.30-16.30 7.30-16.30 7.30-16.30 7:30-16.00

 

Breytingar á dvalartíma leikskólabarna - Garðabær