Beint í efni

Búið að leggja göngu­skíða­braut á golf­velli GKG

Fréttir
29.01.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Gönguskíðabraut á golfvelli GKG er komin í gagnið.

Búið er að leggja gönguskíðabraut á golfvelli GKG. Raunar er þetta í annað sinn á síðastliðnum þremur dögum sem brautin er lögð en það snjóaði yfir hana aðfaranótt þriðjudags og þurfti að endurgera hana.

Vallarstarfsmenn hjá GKG hafa haft í nógu að snúast undanfarið við snjómokstur á vellinum og vinnu við að koma gönguskíðabrautinni í gagnið. Þeir nutu aðstoðar frá Hjálparsveit Skáta í Kópavogi við gerð brautarinnar.

Það var greinilega nokkur eftirvænting eftir gönguskíðabrautinni og var fólk þegar byrjað að nota hana í gærkvöldi þegar verið var að leggja lokahönd á vinnu við hana.

Búið að leggja gönguskíðabraut á golfvelli GKG - Garðabær