Beint í efni

COV­ID-19: Gild­andi tak­mark­an­ir inn­an­lands fram­lengdar til 2. febr­ú­ar

Fréttir
11.01.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja óbreyttar gildandi takmarkanir á samkomum innanlands til og með 2. febrúar næstkomandi. Ákvörðun ráðherra byggist á tillögum sóttvarnalæknis sem telur nauðsynlegt að takmarka áfram sem mest útbreiðslu Covid-19 til að verja heilbrigðiskerfið. Samhliða nýrri reglugerð um samkomutakmarkanir hefur ráðherra til hagræðis sett sérstaka reglugerð um skólastarf, líkt og gert hefur verið á fyrri stigum faraldursins.

Í minnisblaði sóttvarnalæknis, dags. 5. janúar síðastliðinn koma einnig fram tillögur hans um breytingar á sóttkví sem þegar hafa komið til framkvæmda, sbr. tilkynning ráðuneytisins frá 7. janúar síðastliðnum .

Í frétt á vef heilbrigðisráðuneytisins er hægt að sjá minnisblað landlæknis og sóttvarnalæknis, dags. 10. janúar, um stöðu heilbrigðiskerfisins á Íslandi og þróun faraldursins. Þar er jafnframt hægt að sjá reglugerðir ráðherra.

Almennar upplýsingar fyrir almenning um Covid er einnig að finna á vefnum covid.is

COVID-19: Gildandi takmarkanir innanlands framlengdar til 2. febrúar - Garðabær