Beint í efni

Dælu­stöð við Breiðu­mýri ekki í rekstri á fimmtu­dag vegna við­halds

Fréttir
24.06.2025

Dælustöð vatnsveitu við Breiðumýri verður ekki í rekstri á meðan á framkvæmd stendur og ráðlagt er að geyma sjóböð og fjöruferðir við strendur Álftaness þar til vinnunni er lokið.

Unnið verður að viðhaldi á dælulögn í Lambamýri á Álftanesi á fimmtudaginn nk., 26. júní. Á meðan á vinnunni stendur verður dælustöð vatnsveitu við Breiðumýri ekki í rekstri en dælubílar munu sinna stöðinni á meðan á viðhaldi stendur.

Hugsanlega gæti þurft að nota útrásarbrunn fráveitu við Hrakhólma.

Vinnan ætti almennt ekki að hafa áhrif á íbúa Álftaness en ekki er ráðlegt að stunda sjóböð eða fjöruferðir við strendur Álftaness á meðan á framkvæmd stendur vegna möguleikanum á aukinni mengun í sjó ef til þess kemur að útrásarbrunnur við Hrakhólma verði notaður.

Áætlað er að vinnan hefjist um klukkan 9:00 og gert er ráð fyrir að hún taki um sex til átta klukkustundir.

Starfsmenn Garðabæjar munu fylgjast með framgangi verksins og hafa eftirlit með fjörum eins og kostur er.

Dælustöð við Breiðumýri ekki í rekstri á fimmtudag vegna viðhalds - Garðabær