Beint í efni

Dale Carn­eg­ie nám­skeið fyr­ir ungt fólk í Garða­bæ

Fréttir
06.10.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Garðabær er í samstarfi við Dale Carnegie um námskeið í haust fyrir ungt fólk á aldrinum 13-15 ára (8.-10. bekk) búsett í Garðabæ. Dale Carnegie námskeiðið er einu sinni í viku, 3,5 klst í senn í 9 skipti.

Garðabær er í samstarfi við Dale Carnegie um námskeið í haust fyrir ungt fólk á aldrinum 13-15 ára (8.-10. bekk) búsett í Garðabæ. Dale Carnegie námskeiðið er einu sinni í viku, 3,5 klst í senn í 9 skipti.

Fyrsti tíminn er þriðjudaginn 12. október nk. og enn er hægt að skrá sig á námskeiðið. Námskeiðið er niðurgreitt fyrir þátttakendur vegna samstarfssamningar Garðabæjar og Dale Carnegie. Kostnaður fyrir þátttakendur í Garðabæ er 51000 kr (fullt verð er 119000 kr).

Námskeiðið er krefjandi og skemmtilegt, ýtir undir frumkvæði, eflir leiðtogahæfileika og eykur sjálfstraust. Á námskeiðinu fá þátttakendur þjálfun í að tala fyrir framan hóp og verða betri í tjáningu og læra margar aðferðir sem hjálpa til við að sýna frumkvæði, hvatningu og jákvæðni.

Það sem er farið yfir á námskeiðinu:

  • Þjálfun í að tala fyrir framan hóp og verða betri í tjáningu
  • Efla sjálfstraust og læra að þekkja okkur sjálf
  • Kynnast áhrifaríkum aðferðum til að þora að eiga frumkvæði í samskiptum, eignast fleiri vini og styrkja sambönd
  • Skoða virði þess að vera duglegri og leggja okkur fram
  • Læra aðferðir sem hjálpa til að vera jákvæðari
  • Læra hvað hrós og hvatning getur haft jákvæð áhrif á okkur sjálf og aðra
  • Efla frumkvæði og leiðtogafærni

Skráning fer fram á dale.is eða á skrifstofu Dale Carnegie í síma 555 7080.

Dale Carnegie námskeið fyrir ungt fólk í Garðabæ - Garðabær