Beint í efni

Far­sæld­ar­ráð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins stofnað

Fréttir
19.11.2025

Farsældarráð höfuðborgarsvæðins var formlega stofnað föstudaginn 14. nóvember. Með stofnun ráðsins er stigið mikilvægt skref í átt að samstilltu átaki sveitarfélaga og ríkisstofnana um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.

Sá ánægjulegi áfangi náðist föstudaginn 14. nóvember að Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins var formlega stofnað. Undirskriftarviðburðurinn fór fram á aðalfundi SSH í Garðaholti í Garðabæ.

Farsældarráðið er vettvangur sameiginlegrar stefnumótunar og samráðs í samræmi við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Stofnun ráðsins festir í sessi markvisst samtal og aukna samvinnu milli þjónustuaðila ríkis og sveitarfélaga. Markmið ráðsins er að efla og samræma þjónustu við börn á höfuðborgarsvæðinu með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun.

Þjónustuveitendur eiga aðild að ráðinu

Aðilar að ráðinu eru sveitarfélögin sex, Garðabær, Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Seltjarnarnes. Sveitarfélögin gegna lykilhlutverki í þjónustu við börn og bera ábyrgð á skólaþjónustu, leik- og frístundastarfi, félagsþjónustu og barnavernd. Auk sveitarfélaganna eiga aðild að ráðinu Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu, Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu og íþróttahreyfingin á höfuðborgarsvæðinu.

Ráðið mun forgangsraða aðgerðum og móta fjögurra ára aðgerðaáætlun sem allir aðilar samþykkja. Aðgerðirnar byggja á samvinnu þjónustuveitenda og tengjast öllum helstu þáttum farsældar: menntun, heilsu og vellíðan, félagslegri stöðu og lífsgæðum, öryggi og vernd, þátttöku og félagslegum tengslum. Sérstök áhersla verður lögð á snemmtæka íhlutun og samfélagslegar forvarnir.

Vinna ráðsins byggir á gögnum og samráði

Ráðið mun nýta fyrirliggjandi gögn og m.a. byggja á víðtæku samráði sem þegar hefur átt sér stað. Þar má nefna niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, sem verða notaðar sem áttaviti í forgangsröðun og árangursmælingum. Þá nýtast ráðinu vel niðurstöður úr vinnustofum sem lögreglan hefur staðið fyrir í sveitarfélögunum þar sem starfsfólk lögreglu, heilsugæslu, sveitarfélaga, framhaldsskóla og íþróttafélaga hefur unnið saman að lausnum fyrir börn í viðkvæmri stöðu.

Einnig verður horft til aðgerðaáætlunar svæðisstöðvar íþróttahéraðanna á höfuðborgarsvæðinu, sem unnin var í samstarfi við öll íþróttafélög á svæðinu og miðar að því að auka íþróttaþátttöku barna og ungmenna. Þá mun ráðið nýta greiningar frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) varðandi forvarnir, geðrækt og úrræði í grunnskólum. Samvinna innleiðingastjóra farsældar á höfuðborgarsvæðinu verður jafnframt mikilvæg í vinnunni, en þau hafa greint helstu áskoranir sem tengjast samþættingu þjónustu við börn og ungmenni.

Farsældarráð í öllum landshlutum

Farsældarráðin á landinu byggja á samningi mennta- og barnamálaráðuneytisins við sjö landshlutasamtök sveitarfélaga sem undirritaður var í október 2024. Með samningnum skuldbundu öll sveitarfélög landsins sig til að hefja innleiðingu 5. greinar laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmiðið er að börn og foreldrar fái þjónustu við hæfi, án hindrana og stofnun ráðanna markar mikilvægan áfanga í þeirri innleiðingu.

Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins stofnað - Garðabær