Beint í efni

Fram­kvæmd­ir í bún­ings­klef­um Ás­garðs­laugar

Fréttir
05.08.2025

Vegna nauðsynlegra viðhaldsframkvæmda verða breytingar á aðgengi að búningsklefum Ásgarðslaugar. Uppfært

 Uppfært 5.8.2025

Framkvæmdir í Ásgarðslaug halda áfram þessa viku, en lagfæringar í karlaklefanum reyndust umfangsmeiri en áætlað var. Þegar þeim er lokið hefjast framkvæmdir í kvennaklefanum. Við þökkum skilninginn og vonum að búningsklefarnir verði enn betri þegar þeir hafa fengið smá uppfærslu.

  • Fyrst verður ráðist í lagfæringar á karlaklefa sundlaugarinnar og verður hann lokaður tímabundið. Á meðan geta karlmenn nýtt sér báða útiklefana sem standa gestum opnir.  
  • Að loknum framkvæmdum í karlaklefanum verður kvennaklefinn tekinn í gegn. Á meðan hann er lokaður geta konur einnig nýtt sér útiklefana sem verða opnir fyrir þær.


Við biðjum gesti um skilning og þolinmæði á meðan framkvæmdir standa yfir og minnum á að sundlaugin verður opin á framkvæmdatíma. 

Framkvæmdir í búningsklefum Ásgarðslaugar - Garðabær