Beint í efni

Frí­stunda­bíll­inn stoppar í Mið­garði

Fréttir
10.02.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Akstursleiðir frístundabílsins í Garðabæ breyttust 7. febrúar sl. þar sem búið er að bæta við stoppi í Miðgarði á öllum þremur leiðum frístundabílsins. Frá og með sunnudeginum 20. febrúar nk. verður hægt að taka strætó, leið 22, sem stoppar við Miðgarð.

Fyrsta æfingin í Miðgarði fór fram um síðustu helgi og nú eru æfingar komnar á fullt í þessu nýja fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri. Akstursleiðir frístundabílsins í Garðabæ, sem keyrir börn frá frístundaheimilum grunnskóla í íþrótta- og tómstundastarf, breyttust 7. febrúar sl. þar sem búið er að bæta við stoppi í Miðgarði á öllum þremur leiðum frístundabílsins.

Hér á vef Garðabæjar er hægt að sjá upplýsingar um akstursleiðir og tímatöflu frístundabílsins og upplýsingar um skráningu í bílinn og gjaldskrá.

Strætó á leið 22 keyrir í Miðgarð frá 20. febrúar

Frá og með sunnudeginum 20. febrúar nk. verður hægt að taka strætó sem stoppar við Miðgarð. Leið 22 bætir við stoppi við Miðgarð á leið sinni milli Ásgarðs og Urriðaholts. Nánari upplýsingar með uppfærðri tímatöflu verða settar inn á vef Strætó fyrir 20. febrúar nk.

Frístundabíllinn stoppar í Miðgarði - Garðabær