Beint í efni

Guð­jón Er­ling hætt­ir sem bæj­ar­rit­ari og Lúð­vík Örn Stein­ars­son tek­ur við sem sviðs­stjóri fjár­mála o

Fréttir
04.04.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Lúðvík Örn Steinarsson, hefur hafið störf sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs Garðabæjar. 

Frá sama tíma lætur Guðjón Erling Friðriksson af störfum bæjarritara (sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs).

Guðjón Erling mun starfa áfram hjá Garðabæ næstu mánuði við frágang verkefna og undirbúning og framkvæmd forsetakosninga sem fyrirhugaðar eru 1. júní.

Um leið og Guðjóni Erling eru þökkuð störf sem bæjarritari til 40 ára er Lúðvík Örn boðinn velkominn til starfa hjá Garðabæ.

Guðjón Erling hættir sem bæjarritari og Lúðvík Örn Steinarsson tekur við sem sviðsstjóri fjármála o - Garðabær