M-listi hefur kært framkvæmd kosninganna
Fréttir
23.05.2022
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

M-listi Miðflokksins hefur kært framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ til úrskurðarnefndar kosningamála. Í kærunni er vísað til þess að kjörseðill hafi verið þannig gerður að ekki hafi gætt jafnræðis með framboðum.
M-listi Miðflokksins hefur kært framkvæmd sveitarstjórnarkosninganna í Garðabæ til úrskurðarnefndar kosningamála. Í kærunni er vísað til þess að kjörseðill hafi verið þannig gerður að ekki hafi gætt jafnræðis með framboðum. Yfirkjörstjórn Garðabæjar barst tilkynning um kæruna 20. maí sl. frá úrskurðarnefnd kosningamála og hefur yfirkjörstjórn Garðabæjar verið veittur frestur til þriðjudags 24. maí nk. að veita umsögn um kæruna.