Beint í efni

Leir­lista­smiðj­an Álf­ar og Óska­steinar

Fréttir
25.02.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Leirlistasmiðjan Álfar og Óskasteinar verður haldin á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 26. febrúar kl. 13:00 til 14:00.

Leirlistasmiðjan Álfar og Óskasteinar verður haldin á Bókasafni Garðabæjar laugardaginn 26. febrúar kl. 13:00 til 14:00. Björk Viggósdóttir listamaður mun leiðbeina í smiðjunni.

Unnin verða leirlistaverk með innblástri frá Álfum og óskasteinum þar sem ímyndunaraflið og sköpunarkrafturinn er í forgrunni.

Mótaðir verða álfar og óskasteinar úr leir og þátttakendur taka með sér listaverkin heim eftir smiðjuna.

Smiðjan er ókeypis og opin öllum. Hvetjum Garðbæinga til að mæta!

Leirlistasmiðjan Álfar og Óskasteinar - Garðabær