Beint í efni

Mal­bik­un á Ey­vind­ar­staða­vegi

Fréttir
14.05.2025

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur.

Á morgun, fimmtudaginn 15. maí, mun Loftorka vinna við malbikun á Eyvindastaðavegi á Álftanesi, frá Norðurnesvegi og inn í botn hjá Álftanesskóla, ef veður leyfir.

Byrjað verður um klukkan 9:00 og unnið fram eftir degi.

Götukaflinn verður lokaður fyrir alla umferð á meðan framkvæmdum stendur en hjáleiðir verða merktar eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani.

Malbikun á Eyvindarstaðavegi - Garðabær