Beint í efni

Næsta inn­rit­un­ar­lota verð­ur í ág­úst

Fréttir
01.07.2025

Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2025–2026 hefur gengið vel og í maí höfðu öll börn fædd í september 2024 eða fyrr fengið boð um leikskólavist.

Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir skólaárið 2025–2026 hefur gengið vel og í maí höfðu öll börn fædd í september 2024 eða fyrr fengið boð um leikskólavist.

Næsta innritunarlota verður seinnipartinn í ágúst 2025, þá verður haldið áfram að innrita í laus pláss.

Vert er að minna á að innritun á sér stað allan ársins hring í leikskóla Garðabæjar, eftir því sem pláss losna.

Nokkrar praktískar upplýsingar fyrir fjölskyldur:

  • Upplýsingar um innritun eru veittar í gegnum netfangið: innritun@gardabaer.is
  • Vala leikskólakerfi heldur utan um flest sem viðkemur umsókn og leikskóladvöl barnsins.
  • Foreldrum er sent bréf þegar barn fær leikskóladvöl. Foreldrar hafa 5 virka daga í umhugsunarfrest, eftir það er barnið tekið af biðlista.
  • Skilyrði fyrir leikskóladvöl er að barn eigi lögheimili í Garðabæ og sé búsett í bænum. Sjá nánar hér: Innritunarreglur

Spurt og svarað um leikskólamál

Næsta innritunarlota verður í ágúst - Garðabær