Beint í efni

Nýr sam­starfs­samn­ing­ur Hesta­manna­fé­lags­ins Spretts og Garða­bæj­ar und­ir­rit­að­ur

Fréttir
25.09.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Garðabær hefur undirritað samstarfssamning við Hestamannafélagið Sprett.

Meginmarkmið samstarfs Hestamannafélagsins Spretts og Garðabæjar er að efla barna- og unglingastarf í hestaíþróttum í Garðabæ, meðal annars með reglulegu námskeiðahaldi á félagssvæði Spretts.

Með samstarfinu skal sérstaklega hugað að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Einnig að vinna áætlun varðandi eineltismál og skal félagið njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við slíkum málum í samræmi við forvarnastefnu og samskiptasáttmála bæjarins. Aðalstjórn Spretts ber einnig ábyrgð á að félagið og allar deildir þess kynni sér, innleiði og starfi samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum ÍSÍ um kynferðislegt áreiti í íþróttum.

Nýr samningur gildir til ársloka 2025.

0_IMG_0160

Katla Gísladóttir varaformaður Spretts og Jónína Björk Vilhjálmsdóttir formaður Spretts ásamt Almari Guðmundssyni bæjarstjóra Garðabæjar og Hrannari Braga Eyjólfssyni formanni íþrótta- og tómstundaráðs við undirritun samningsins.

Nýr samstarfssamningur Hestamannafélagsins Spretts og Garðabæjar undirritaður - Garðabær