Beint í efni

Opið fyr­ir at­huga­semd­ir um mið­bæ og Móa til 7. jan­ú­ar

Fréttir
22.12.2025

Frestur til að skila inn athugasemdum vegna tillögu að breytingu deiliskipulags miðbæjar og Móa hefur verið framlengdur frá 29. desember til 7. janúar 2026.

Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn athugasemdum vegna tillögu að breytingu deiliskipulags miðbæjar (Svæði I og II) og tillögu að endurskoðuðu deiliskiplagi Móa framlengist frá 29. desember til miðvikudagsins 7. janúar 2026

Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar og í skipulagsgátt.

Íbúafundur um breytingar á deiliskipulagi miðbæjar Garðabæjar – Garðatorgs sem haldinn var í Sveinatungu um miðjan nóvember var vel sóttur, kynninguna í heild sinni má nálgast hérna.

Opið fyrir athugasemdir um miðbæ og Móa til 7. janúar - Garðabær