Rampur númer 450 í Garðabæ
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag.
36 fyrirtæki hafa fengið nýja eða uppfærða rampa í Garðabæ á undanförnum dögum á vegum verkefnisins Römpum upp Ísland. 450 rampar hafa verið settir upp á landsvísu frá því að verkefnið var sett af stað en markmiðið er 1500 á fjórum árum.
Rakarastofa Garðabæjar fékk þann heiður að fá ramp númer 450, þeir Sævar Jóhann Sigursteinsson og Hlynur Guðmundsson, hársnyrtar, reka stofuna og buðu þeir Hákoni Atla Bjarkasyni íbúa á Garðatorgi að vígja rampinn formlega á föstudag.

„Mig langar auðvitað að þakka Römpum upp Ísland fyrir þeirra góða framlag hér í bænum, það hefur verið gaman að fylgjast með þeim að störfum. Römpum upp verkefnið er gott og löngu tímabært framtak og mikilvægt jafnréttismál,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri og bendir á að hreyfihamlað fólk leggur oft mikla vinnu á sig til að komast að því hvort staðir séu aðgengilegir, í stað þess að það sé sjálfsagt. „Að tryggja gott aðgengi er samfélagslegt verkefni okkar allra.“

Meðal þeirra sem hafa fengið uppfærslur á römpum í Garðabæ eru hársnyrtistofur, verslanir, kaffihús og ísbúð.
Um Römpum upp Ísland
Römpum upp Ísland er verkefni þar sem miðað er að því að setja upp 1500 rampa á næstu 4 árum um land allt. Stofnaður var sjóður með aðkomu fjölmargra fyrirtækja og aðila sem munu standa straum af kostnaði fyrir þá verslunar- og veitingahúsaeigendur sem taka þátt í verkefninu. Framlag ríkisins nemur 200 milljónum kr. á tímabilinu. Álíka upphæð mun renna inn í verkefnið frá einkaaðilum og sveitarfélögum.
Með römpunum er öllum gert kleift að komast á þægilegan hátt inn á veitingastaði og verslanir á landinu öllu. Verkefnið verður framkvæmt í góðu samstarfi við eigendur viðkomandi bygginga og skipulagsyfirvalda.
Haraldur Þorleifsson, stjórnandi hjá Twitter og stofnandi hönnunarfyrirtækisins Ueno, er hvatamaður verkefnisins.
