Beint í efni

Sækja lif­andi jóla­tré

Fréttir
03.01.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Venju samkvæmt verða jólatré hirt í Garðabæ dagana 7.-8. janúar! 

Ef veður leyfir verður Hjálparsveit skáta Garðabæ á ferðinni þriðjudaginn 7. janúar og miðvikudaginn 8. janúar og sækir lifandi jólatré sem þjónað hafa tilgangi sínum.
Íbúar eru beðnir um að koma trjánum fyrir á augljósum en öruggum stað við lóðamörk og ganga vel frá þeim. Það auðveldar tiltektina!

Sækja lifandi jólatré - Garðabær