Beint í efni

Samn­ing­ur við Hjálp­ar­sveit skáta í Garða­bæ

Fréttir
12.01.2023

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Á dögunum skrifuðu þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Íris Dögg Sigurðardóttir formaður Hjálparsveit skáta í Garðabæ undir þjónustusamning um stuðning við starfsemi sveitarinnar.

Á dögunum skrifuðu þau Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Íris Dögg Sigurðardóttir formaður Hjálparsveit skáta í Garðabæ undir þjónustusamning um stuðning við starfsemi sveitarinnar.

Með samningnum er fjárhagslegur grundvöllur sveitarinnar styrktur enda sinnir félagið öflugu félags- og forvarnarstarfi ásamt því að vera mikilvægur hlekkur í öryggismálum bæjarbúa.

Garðabæ greiðir Hjálparsveitinni árlega styrk fyrir flugeldasýningu og geymslu flugelda, jólatrjáasöfnun, menntun og þjálfun félaga ásamt sálrænum stuðningi félaga.

Samningur við Hjálparsveit skáta í Garðabæ - Garðabær