Beint í efni

Sorp­hirðu­dagatal 2023 -tæm­ing á tunn­um tveimur dög­um á eft­ir áætl­un

Fréttir
04.01.2023

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Sorphirðudagatal fyrir árið 2023 er komið á vef Garðabæjar. Þar má finna dagsetningar á losun sorp- og pappírstunna á árinu. Undanfarnar vikur hefur orðið röskun og seinkun á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu en í Garðabæ er tæming á tunnum nú tveimur dögum á eftir áætlun.

Sorphirðudagatal fyrir árið 2023 er komið á vef Garðabæjar. Þar má finna dagsetningar á losun sorp- og pappírstunna á árinu. 

Sorphirðudagatal 2023

Á árinu 2023 verður nýtt flokkunarkerfi á höfuðborgarsvæðinu innleitt á vormánuðum þar sem fjórum úrgangsflokkum verður safnað við hvert heimili. Nánari upplýsingar verða gefnar um það á næstu vikum og mánuðum. Sjá frétt hér frá desember 2022.

Á vef Garðabæjar er einnig hægt að sjá hvenær sorp er hirt í einstaka götum. Hægt er að slá inn heimilisfang/götuheiti og sjá hvenær næsta losun í þeirri götu verður. 

SORPHIRÐUDAGATAL -hvenær er sorp hirt í götunni minni?

Undanfarnar vikur hefur orðið röskun og seinkun á sorphirðu á höfuðborgarsvæðinu en í Garðabæ er tæming á tunnum nú tveimur dögum á eftir áætlun. Upphaflega tafði snjókoma og færð för og svo frídagar yfir jólahátíðina og erfitt hefur reynst að vinna upp seinkun. 

Íslenska gámafélagið s. 577 5757 , sér um sorphirðu í Garðabæ samkvæmt samningi við bæinn.

Sorphirðudagatal 2023 -tæming á tunnum tveimur dögum á eftir áætlun - Garðabær