Beint í efni

Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti í Garða­bæ

Fréttir
23.04.2025

Farið verður í skrúðgöngu og boðið upp á skemmtidagskrá í Miðgarði með töframönnum, andlitsmálningu, hoppukastala, veltibíl og tónlist.

Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá í Garðabæ í tilefni sumardagsins fyrsta. Skátafélagið Vífill sér um dagskrána.

Farið verður í skrúðgöngu frá Hofstaðaskóla klukkan 14:00 þar sem Blásarasveit Tónlistarskólans í Garðabæ sér um tónlistina. Gengið verður í Miðgarð, þar verður hægt að klifra í klifurvegg, hoppa í hoppukastölum, veltast um í veltibíl og fá andlitsmálun. Einnig verða töframenn á svæðinu.

Melkorka Rós, Aníta Rós, VÆB og Egill Spegill halda uppi stuðinu.

Hægt verður að fá sér ýmsar kræsingar á 2. hæð hússins.

Skjamynd-2025-04-23-131641

Sumardagurinn fyrsti í Garðabæ - Garðabær