Beint í efni

Leið­bein­ingar um skjá­notk­un barna

Fréttir
06.03.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Mikil skjánotkun getur haft neikvæð áhrif á máltjáningu ungra barna. Félag talmeinafræðinga á Íslandi hefur sent frá sér ráð og leiðbeiningar um skjánotkun barna sem þau deila í tilefni Evrópudags talþjálfunar.

Ár hvert, þann 6. mars er Evrópudagur talþjálfunar haldinn hátíðlegur á meðal talmeinafræðinga í Evrópu, þema ársins í ár er Eflum málumhverfi barna. Dagurinn er ætlaður sem almenn vitundarvakning á störfum og þjónustu talmeinafræðinga.

Í Garðabæ starfa tveir talmeinafræðingar á leikskólasviði, það eru þær Kristín Theódóra og Sara Bjargardóttir. Kristín og Sara eru hluti af sérfræðiþjónustu Garðabæjar og sitja í skólaþjónustuteymi með öðrum fagaðilum innan Garðabæjar.  Þær vilja benda foreldrum á leiðbeiningar um skjánotkun barna sem Félag talmeinafræðinga á Íslandi hefur sent frá sér.

Tal2

Tal1Tal3

Leiðbeiningar um skjánotkun barna - Garðabær