Beint í efni

Garða­hraun

Garðahraun er frístund og félagsmiðstöð fyrir börn í 5. til 10. bekk sem eru með fötlunargreiningar og miklar stuðningsþarfir.

Garðahraun

Hátíðarsalur við UMFÁ, Breiðumýri 225 Álftanes

Sími: 820 8594

Forstöðumaður: Ágúst Arnar Þráinsson

agustthr@gardabaer.is

Deildarstjóri: Adam Árni Andersen 

adaman@gardabaer.is

Starfsemi

Í Garðahrauni er boðið upp á fjölbreytt og skapandi tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur til klukkan 16:30. Barnið getur komið einu sinni í viku eða eins oft og óskað er eftir. Boðið er upp á síðdegishressingu.

Markmið Garðahrauns er að veita börnum öruggt athvarf og bjóða upp á skipulagðar tómstundir við hæfi hvers og eins.

Lögð er áhersla á:

  • virðingu fyrir einstaklingnum
  • fagleg vinnubrögð
  • jákvæð samskipti
  • gott samstarf við foreldra.

Upplýsingar um Garðahraun

Þú getur fengið nánari kynningu á starfseminni með því að hafa samband við:

Sækja um í Garðahrauni

Sótt er um í Garðahraun á Þjónustugátt Garðabæjar. Þegar umsókn ásamt fylgigögnum hefur verið móttekin er farið yfir umsóknina af inntökuteymi Garðahrauns. Þegar umsókn er samþykkt þarf að skrá barnið á frístundavef Völu

Skilyrði fyrir að umsókn sé samþykkt er að barnið hafi greiningu frá viðurkenndum greiningaraðilum, eins og Ráðgjafar- og greiningarstöð eða Geðheilsumiðstöð barna.

Mat á umsókn

Við mat á umsóknum er horft til eftirfarandi þátta:

  • Greiningu á fötlun barnsins frá viðurkenndum greiningaraðilum.
  • Mati á stuðningsþörf (SIS) frá Ráðgjafar- og greiningarstöð.
  • Náms- og félagslegri stöðu barnsins, félagslegri þátttöku og líðan.
  • Óskum foreldra og barns með tilliti til aldurs og þroska.
  • Mati á einstaklingsbundinni þjónustuþörf.

Gjaldskrá

Frístundaheimili – Tími (klst./mán.)

Gjald (kr.)

1–10

4,900

11–20

9,800

21–30

14,700

31–40

19,600

41–50

24,500

51–60

29,400

61–70

34,300

71–80

39,200

Garðahraun – Tími (klst./mán.)

Gjald (kr.)

1–10

4,900

11–20

9,800

21–30

14,700

31–40

19,600

41–50

24,500

51–60

29,400

61–70

34,300

71–80

39,200

Liður

Gjald (kr.)

Eining

Síðdegishressing

250

pr. skipti

Opnunardagar utan skólatíma – heill dagur

3,920

pr. dag

Hádegishressing á opnunardögum

620

pr. skipti

Sumarstarf frístundaheimila (7 dagar í ágúst)

16,640

heild

Sumarstarf Garðahrauns (5.–10. bekk)

12,482

pr. viku

Frístundabíll – vorönn 2026

13,400

heild

Forsendur og skýringar

• Systkinaafsláttur: 50% af grunngjaldi fyrir barn umfram eitt og 75% fyrir barn umfram tvö.

• Tekjutengdur afsláttur: 40% af almennu dvalargjaldi (sótt í þjónustugátt).

• Frístundabíll: skráning í gegnum Völu vetrarfrístund; gjald gildir fyrir vorönn 2026 og endurskoðast fyrir haustönn 2026.