Beint í efni

Hvata­pen­ingar

Öll börn á aldrinum 5-18 ára, með lögheimili í Garðabæ, fá hvatapeninga til að greiða niður gjöld í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Upphæðin er 67.000 kr. árið 2026.

Í hvað nýtast hvatapeningar?

Hvatapeningarnir nýtast meðal annars í:

  • Íþrótta- og æskulýðsstarf: Starf sem er stundað á vegum viðurkenndra íþróttafélaga, sumarnámskeið, dans í dansskólum og skátastarf.
  • Tónlistarnám: Tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar og öðrum tónlistarskólum.
  • Skipulögð námskeið á líkamsræktarstöðvum: Styrkurinn gildir fyrir skipulögð unglinga- og dansnámskeið.
  • Líkamsræktarkort: 16, 17 og 18 ára ungmenni geta nýtt hvatapeningana til að kaupa kort í líkamsræktarstöðvum.

Ástæða hvatapeninga

Ástæðan fyrir þessum hvatagreiðslum er að langtímarannsóknir sýna að þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu starfi sem nær yfir 10 vikur eða lengur, sérstaklega íþrótta- og skátastarfi, hefur marktæk áhrif á bætta vellíðan og minni vandamál.

Skilyrði

Til þess að hægt sé að nýta hvatapeningana þarf starf:

  • að vera skipulagt undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda
  • að ná yfir 1 önn eða að lágmarki 10 vikur

Fyrir 5 og 6 ára börn er lágmarkstímalengd námskeiða 20 kennslustundir, óháð vikufjölda.

Hvatapeninga ársins 2026 er hægt að nýta vegna reikninga sem gefnir eru út á árinu 2025 og 2026. Ónýttir hvatapeningar geymast ekki milli ára og er ekki hægt að nota þá til að greiða reikninga námskeiðs sem byrjar á næsta ári.

Viðbótarhvatapeningar fyrir tekjulág heimili

Þú getur sótt um viðbótarhvatapeninga (15.000 kr.) í Þjónustugátt Garðabæjar ef heildartekjur heimilis eru undir ákveðnum tekjumörkum:

  • Einstaklingur: undir 923.000 kr. á mánuði.
  • Sambýlisfólk: undir 1.131.000 kr. á mánuði.

Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu 3 mánuði þegar sótt er um. Tekjumörkin miðast við launavísitölu 1. janúar 2026.

Leiðbeiningar um notkun hvatapeninga

Við skráningu í Abler eða XPS

Ef félagið sem barnið er að iðka tómstundir hjá notar skráningarkerfin Abler eða XPS á að nýta hvatapeninga við skráningu í félagið.

  1. Þegar þú hefur skráð þig inn smellir þú á Námskeið eða Flokkar í boði, fyrir aftan nafnið á því barni sem þú ætlar að skrá. 
  2. Finndu rétta deild, flokk og námskeið og smelltu á Skráning á námskeið
  3. Hakaðu við reitinn Nota hvatapeninga Garðabæjar. Þá kemur fram hversu mikla hvatapeninga barnið á inni og sú upphæð dregst frá æfingagjaldinu. Ef þú vilt ekki nota alla hvatapeningana geturðu breytt upphæðinni. 
  4. Þú gengur frá greiðslunni og borgar gjaldið að frádregnum hvatapeningunum.

Það er ekki hægt að endurgreiða eða bakfæra styrk frá félögum eftir að þú hefur ráðstafað styrknum til félags.

Þau sem æfa með félögum tengdum Sportabler eða XPS en hafa greitt fullt gjald geta einnig nýtt sér sömu leið og er útskýrð hér að neðan til að fá hvatapeninga.

Félög sem nota ekki Abler eða XPS

Fyrir félög sem nota ekki Abler eða XPS þarf að greiða fullt gjald til félagsins og koma greiðslukvittun til þjónustuvers Garðabæjar.

Á greiðslukvittun þarf að koma fram:

  • Nafn og kennitala félags.
  • Dagsetning greiðslu. 
  • Fyrir hvað er verið að greiða. 
  • Æfingatímabil.
  • Nafn og kennitala iðkanda.

Þú getur sent kvittunina á gardabaer@gardabaer.is eða með pósti til þjónustuvers Garðabæjar ásamt nafni greiðanda, kennitölu, símanúmeri og bankareikningsupplýsingum.

Þú getur líka komið með kvittunina í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.

Hvatapeningar - Garðabær