Garðakortið – aðgangskort í sundlaugar
Gestir sundlauga í Garðabæ geta afgreitt sig sjálfir með Garðakortinu. Kortið er hægt að hafa í síma eða sem áfyllingarkort úr plasti.
Stafrænt kort í símann
Þú kaupir stafrænt kort í símann á gardakort.is. Þegar kort er útrunnið eða skipti fullnýtt getur þú keypt nýtt stafrænt kort á vefnum.
Um leið og þú hefur greitt fyrir kortið getur þú bætt því við í veskið í símann.
- iPhone: Kortið fer í Wallet.
- Android: Kortið fer í Google Wallet.
Þú finnur greiðslukvittun í Þjónustugátt Garðabæjar undir Gjöld.
Glatað kort
Ef þú hefur fjarlægt kortið úr símaveskinu eða skipt um síma getur þú fundið hlekkinn á kortið í tölvupósti frá noreply@smartsolutions.is sem var sendur við kaupin.
Þú getur líka sent tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is með upplýsingum þínum.
Plastkort
Þú getur keypt plastkort í afgreiðslu sundlauganna og fyllt á þau þar. Þegar þú kaupir plastkort í fyrsta sinn, eða þarft nýtt kort, vegna þess að það týndist eða er ónýtt, þarftu að greiða stofnkostnað.
Það er ekki hægt að flytja inneign af plastkortum yfir á stafræn kort.
Ókeypis aðgangur
Börn (yngri en 18 ára), eldra fólk (67 ára og eldri) og öryrkjar fá ókeypis í sund í Garðabæ með Garðakortinu.
- Börn og eldra fólk geta sótt stafrænt árskort í símann sinn með því að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á gardakort.is.
- Öryrkjar fá stafrænt árskort með því að senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is.
- Plastkort: Einnig er hægt að fá plastkort með því að sýna skilríki í afgreiðslu sundlauganna (greiða þarf stofnkostnað).
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.