Dropinn

Dropinn
Hofsstaðaskóli
Netfang: birtahara@hofsstadaskoli.is / kristinre@hofsstadaskoli.is
Opnunartími
- 7. bekkur: Annan hvern miðvikudag og fimmtudag 17–19
- 6. bekkur: Annan hvern fimmtudag 17–19
- 5. bekkur: Annan hvern miðvikudag 17–19
Starfið
Opið hús
Á opnum húsum er opið í tæki og tól Dropans. Á flestum kvöldum er boðið upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.
Stærri viðburðir
Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna þátttöku í Samfés viðburðum eins og danskeppni og böll.
Tvö böll eru haldin fyrir nemendur 7. bekkja í Garðabæ á hverju skólaári: Eitt á haustönn og annað á vorönn. Skipulagning 7. bekkja-balla er í höndum Fjörunnar og Dropans.
Klúbbar
Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. í klúbbunum er unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum.
Hópastarf
Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.
Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.
Upplýsingar um dagskrá
Við sendum tölvupóst varðandi nánari dagskrá.
Starfsfólk
- Birta Líf Haraldsdóttir - forstöðumaður
- Kristín María Reynisdóttir - forstöðumaður
- Arnór Hákonarson
- Rakel Svavarsdóttir
- Sigurbergur Áki Jörundsson
- Stefán Orri Hákonarson
- Valur Björn Atlason
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.