Elítan

Elítan
Íþróttamiðstöðin Álftanes (Álftanesskóli)
540 4790
Netfang: elitan@alftanesskoli.is
Sími forstöðumanns: 821 5017
Opnunartími
- 8.–10. bekkur: Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 19:30–22:00
- 5.–7. bekkur: Mánudagar kl. 17.00–19.00
Starfið
Opið hús
Á opnum húsum er opið í tæki og tól Elítunnar svo sem billiard, borðtennis, pílu og leikjatölvur. Á flestum kvöldum er boðið upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.
Stærri viðburðir
Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna: skíðaferð, gistinótt, árshátíð, böll, vorferðir, fræðslukvöld og þátttaka í Samfés viðburðum eins og Landsmóti, söngkeppni, danskeppni, Stíl og Samfestingi.
Þessir viðburðir eru alltaf vel sóttir og eru unnir í samstarfi á milli félagsmálavalsins, starfsfólks Elítunnar og Álftanesskóla.
Klúbbar
Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. í klúbbunum er unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum.
Hópastarf
Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.
Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.
Upplýsingar um dagskrá
Allar upplýsingar eru birtar á Instagramsíðunni okkar: elitanfelagsmidstod.
Tölvupóstur er sendur varðandi stærri viðburði og dagskrá miðstigs.
Starfsfólk
Sigríður E. Ragnarsdóttir/Sigga Lísa, forstöðumaður Elítunnar
Arnar Freyr Tandrason, frístundaleiðbeinandi
Arngrímur Bragi Steinarsson frístundaleiðbeinandi
Baldur Nói Ólafsson frístundaleiðbeinandi
Bjarni Dagur Karlsson frístundaleiðbeinandi
Elísa Gyrðisdóttir frístundaleiðbeinandi
Ingvar Friðriksson, frístundaleiðbeinandi
Irmawati N.R. Sigurgeirsson frístundaleiðbeinandi
Kári Þorberg Kristinsson, frístundaleiðbeinandi
Marta María Sæberg frístundaleiðbeinandi
Þórunn Birna Úlfarsdóttir frístundaleiðbeinandi
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.