Beint í efni

Garðalundur

Sími: 590 2570
Netfang: gardalundur@gardalundur.is
Vefsíða: gardalundur.is
Instagram: gardalundur
Abler búðin


Sími forstöðumanns 820 8571 / 590 2571

Opnunartími

Alla virka daga frá 19:00 til 22:00.

Starfið

Á skólatíma er að öllu jöfnu hægt að slappa af í Garðalundi milli tíma, í eyðum og matmálstímum. Opnanir eru samt sem áður háðar viðveru starfsfólks og geta verið breytilegar sökum anna.

Opið hús

Á opnum húsum er opið í tæki og tól Garðalundar svo sem billiard, borðtennis, pílu og leikjatölvur. Á flestum kvöldum býður starfsfólk Garðalundar og félagsmálaval Garðaskóla (valáfangi í boði félagsmiðstöðvarinnar) upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.

Stærri viðburðir

Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna: skíðaferð, árshátíð, böll, vorferðir og þátttaka í Samfés viðburðum eins og Landsmóti, söngkeppni, danskeppni, Stíl og Samfestingi. 

Þessir viðburðir eru alltaf vel sóttir og eru unnir í samstarfi á milli félagsmálavalsins, starfsfólks Garðalundar og Garðaskóla.

Klúbbar

Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. Unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Klúbbastarfið er alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl: 19:00 til 22:00. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum. 

Hópastarf

Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.

Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.

Starfsfólk

Sveinborg Petrína Jensdóttir Forstöðumaður

Hákon Hjartarson Aðstoðarforstöðumaður

Aðaldís Emma Baldursdóttir – Frístundaleiðbeinandi

Breki Bragason Frístundaleiðbeinandi

Eva Júlía Birgisdóttir Frístundaleiðbeinandi

Kolbeinn Ingi jónsson Frístundaleiðbeinandi

Ómar Smári Sigurgeirsson Frístundaleiðbeinandi

Teresa María EraFrístundaleiðbeinandi

Vigdís Karla Óladóttir Frístundaleiðbeinandi

Þórarinn Reykdal Frístundaleiðbeinandi

Garðalundur - Garðabær