Urri

Urri
Urriðaholtsskóli við Vinastræti
Sími: 820 8022
Netfang: us-urri@urridaholtsskoli.is / ragnhildurjona@urridaholtsskoli.is
Instagram: Urri_210
Opnunartími
- 8.-10. bekkur: Mánudaga, miðvikudaga og annan hvern föstudag frá kl. 19:30–22:00
- 5. bekkur: Mánudagar 17–19
- 6.-7. bekkur: Miðvikudagar 17–19
Það er frjálst að koma og fara hvenær sem er á opnunartímanum. Nánari opnunartími fyrir miðstig er auglýstur á svæðinu þeirra og í tölvupósti til foreldra.
Staðsetning Urra
Urri er staðsettur við matsal skólans. Gengið er inn í Urra í gegnum inngang unglingastigs.
Starf Urra
Opið hús
Á opnum húsum er opið í tæki og tól Urra svo sem billiard, borðtennis, pílu og leikjatölvur. Á flestum kvöldum býður starfsfólk Urra og félagsmálaval Urriðaholtsskóla (valáfangi í boði félagsmiðstöðvarinnar) upp á dagskrá sem ungmennin sníða sjálf og stýra.
Stærri viðburðir
Stærri viðburðir eru þó nokkrir yfir árið en þar má nefna: skíðaferð, árshátíð, böll, vorferðir og þátttaka í Samfés viðburðum eins og Landsmóti, söngkeppni, danskeppni, Stíl og Samfestingi. Þessir viðburðir eru alltaf vel sóttir og eru unnir í samstarfi á milli félagsmálavalsins, starfsfólks Urra og Urriðaholtsskóla.
Klúbbar
Markmið klúbbastarfs er að bjóða upp á fjölbreytt val af skipulögðu tómstundastarfi í öruggu umhverfi. Unnið er með ákveðin áhugamál eða þemu. Við tökum vel á móti hugmyndum að klúbbum.
Hópastarf
Boðið er upp á hópastarf þar sem verkefnin taka mið af þörfum hópsins. Unnið er með félagsfærni, samskipti og hegðun. Markmiðið er að styrkja ungmennin og rjúfa félagslega einangrun.
Við hvetjum foreldra til að vera í sambandi ef þeir telja að hópastarf gæti verið fyrir sitt barn. Annars eru hóparnir myndaðir í samstarfi við skólann.
Upplýsingar um dagskrá
Allar upplýsingar eru birtar á Instagramsíðunni okkar: Urri_210. Tölvupóstur er sendur varðandi stærri viðburði og dagskrá miðstigs. Ef einhverjar spurningar vakna eða ef þið viljið koma með ábendingar ekki hika við að hafa samband í síma 591 9500 eða með tölvupósti á us-urri@urridaholtsskoli.is.
Starfsfólk Urra
Ragnhildur Jónasdóttir, forstöðumaður
Axel Heimisson
Júlía Kristine Jónasdóttir
Ingibjörg Halla Ólafsdóttir
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.