Beint í efni

Íþrótta­fólk árs­ins

Íþróttamaður Garðabæjar hefur verið tilnefndur frá árinu 1982. Tilkynnt er um valið á íþróttahátíð Garðabæjar sem haldin er í byrjun hvers árs.

Viðurkenningar fyrir afrek í íþróttum

Íþrótta- og tómstundaráð hefur umsjón með vali á íþróttafólki ársins í Garðabæ. Almenningur getur tekið þátt í kjöri íþróttakarls og íþróttakonu ársins með vefkosningu sem er sérstaklega auglýst.

Viðurkenningar eru veittar fyrir:

  • Íþróttakarl Garðabæjar.
  • Íþróttakonu Garðabæjar.
  • Þjálfarar ársins.
  • Heiðursviðurkenning fyrir framlag til íþrótta- og æskulýðsmála.
  • Lið ársins í hópíþróttum.
  • Landsliðsþátttöku í fyrsta skipti með A-landsliði.
  • Landsliðsþátttöku í fyrsta skipti í keppni með U-landsliði.
  • Árangur á erlendum vettvangi.

Íþróttafólk ársins 2025

ithrottafolk-arsins-2025
  • Íþróttakarl ársins: Jón Þór Sigurðsson, skotíþróttamaður.
  • Lucie Martinsdóttir Stefaniková, kraftlyftingakona.
  • Lið ársins: Meistaraflokkur karla í körfubolta hjá Stjörnunni.
  • Þjálfarar ársins: Þjálfarateymi meistaraflokka fimleikadeildar Stjörnunnar.
  • Heiðursviðurkenningar: Friðþjófur Thorsteinsson Ruiz, Agnar Jón Ágústsson, Helgi Hrannarr Jónsson og Sigrún Þorsteinsdóttir.

Kynntu þér íþróttafólk ársins 2025

Íþróttafólk fyrri ára

2024

Íþróttakona og karl ársins 2024
  • Íþróttakarl ársins: Ægir Þór Steinarsson, körfuboltamaður Stjörnunnar
  • Íþróttakona ársins: Ásta Kristinsdóttir, fimleikakona Stjörnunnar.
  • Þjálfarar ársins: Hinrik Pálsson hjá kraftlyftingadeild Stjörnunnar og Árný Oddbjörg Oddsdóttir hjá hestaíþróttadeild Spretts.
  • Lið ársins: Stjarnan, meistaraflokkur kvenna í hópfimleikum.
  • Heiðursviðurkenningar: Halldóra Jónsdóttir og Björgvin Júníusson.

2023

Íþróttafólk Garðabæjar 2023
  • Íþróttakarl ársins: Friðbjörn Bragi Hlynsson, kraftlyftingamaður í Stjörnunni.
  • Íþróttakona ársins: Ísold Sævarsdóttir, frjálsíþrótta- og körfuboltakona í FH og Stjörnunni.
  • Lið ársins: Karlalið Álftaness í körfuknattleik.
  • Þjálfarar ársins: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, knattspyrnuþjálfari fatlaðra hjá Stjörnunni, og Vilhjálmur Halldórsson, handboltaþjálfari í yngri flokkum hjá Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Guðmundur Jónsson í handknattleiksdeild Stjörnunnar og Margrét Tómasdóttir í Skátafélaginu Vífli og Hestamannafélaginu Spretti.

2022

Íþróttafólk Garðabæjar 2022
  • Íþróttakarl ársins: Hilmar Snær Örvarsson, skíðamaður.
  • Íþróttakona ársins: Ásta Kristinsdóttir, hópfimleikakona í Stjörnunni.
  • Lið ársins: Karlasveit meistaraflokks GKG.
  • Þjálfarar ársins: Siggeir Magnússon handboltaþjálfari í Stjörnunni og Auður Íris Ólafsdóttir körfuboltaþjálfari í Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Steinar J. Lúðvíksson í Stjörnunni og Ragnheiður Stephensen í Stjörnunni og GKG.

2021

Íþróttafólk ársins 2021
  • Íþróttakarl ársins: Helgi Laxdal Aðalgeirsson, hópfimleikamaður í Stjörnunni.
  • Íþróttakona ársins: Kolbrún Þöll Þorradóttir, hópfimleikakona í Stjörnunni.
  • Lið ársins: Kvennalið meistaraflokks Stjörnunnar í hópfimleikum.
  • Þjálfarar ársins: Óskar Þorsteinsson körfuboltaþjálfari hjá Stjörnunni og Una Brá Jónsdóttir fimleikaþjálfari hjá Stjörnunni.
  • Heiðursviðurkenningar: Elín Jóhannsdóttir í Bessastaðasókn, Stefanía Magnúsdóttir í Félagi eldri borgara í Garðabæ (FEBG), Jónatan Smári Svavarsson í Skátafélaginu Vífli og Guðmundur Oddsson í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG).