Beint í efni

Korta­vef­ur

Kortavefur Garðabæjar er tólið þitt til að skoða og skilja Garðabæ. Þú getur auðveldlega leitað að teikningum, lóðarmörkum og fróðleik um nærumhverfið.

Hvað er hægt að sjá á kortavefnum?

Á kortavefnum má meðal annars sjá:

  • bekki og göngustíga
  • rafhleðslustöðvar
  • staðsetningu lagna
  • forgangsröðun snjómoksturs
  • fornminjar
  • teikningar af öllum húsum í Garðabæ
  • framkvæmdaáætlun bæjarins fyrir hvert ár 
  • skipulagsmál sem eru í vinnslu

Kortavefurinn geymir mun meira en þetta. Kíktu á kortið og sjáðu hvað annað áhugavert leynist í bæjarlandinu!

Hvernig á að nota kortavefinn?

Í valmyndinni hægra megin getur þú opnað flokkana sem þú vilt skoða og hakað við þær upplýsingar sem þú vilt sjá á kortinu.

Fyrir ofan valmyndina eru fleiri möguleikar, eins og:

  • Nota mælistiku til að mæla vegalengdir á kortinu.
  • Fara í tímaflakk og skoða loftmyndir af bænum aftur til ársins 1966 og bera saman við önnur ár.
Kortavefur Garðabæjar

Finna teikningar af húsum

  1. Stækkaðu kortið þar til húseignin sést vel. Þú getur tvísmellt á kortið eða ýtt nokkrum sinnum á plús-takkann neðst til hægri.
  2. Hakaðu í Teikningar af byggingum neðst í valmyndinni.
  3. Veldu viðkomandi hús.