Beint í efni

Aft­ur til Hofs­staða

Margmiðlunarsýningin Aftur til Hofsstaða er í skemmtilegu rými á Garðatorgi 7. Sýningin spannar sögu Garðabæjar frá landnámi til okkar daga. Hún byggir meðal annars á niðurstöðum fornleifarannsókna á stórum landnámsskála sem fannst við Hofsstaði, við Kirkjulund í Garðabæ. 

Sýningin var hönnuð af Gagarín og er ætluð skólahópum jafnt sem einstaklingum og fjölskyldum.  

Á vefnum www.afturtilhofsstada.is má finna ítarefni um lífið í landnámsskálanum á Hofsstöðum.

1 / 3