Beint í efni

Bæj­ar­lista­mað­ur Garða­bæj­ar

Frá árinu 1992 hefur Garðabær veitt starfsstyrki til listamanna.

Menningar- og safnanefnd gerir tillögur til bæjarstjórnar um úthlutun og koma aðeins til greina þeir listamenn sem búsettir eru í Garðabæ.

Útnefning bæjarlistamanns fer fram að vori við hátíðlega athöfn. Við sama tilefni er listamanni í Garðabæ veitt heiðursviðurkenning fyrir starf í þágu menningar og ungmennum veittur styrkur.

Bæjarlistamenn Garðabæjar

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2025

1 / 11
Tinna Þorsteinsdóttir var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar 2025.
Tinna Þorsteinsdóttir var útnefnd bæjarlistamaður Garðabæjar 2025.

Reglur um styrk til bæjarlistamanns

1. gr.
Bæjarstjórn Garðabæjar veitir árlega styrk til bæjarlistamanns eða bæjarlistamanna eftir því sem nánar er ákveðið hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar. 

2. gr.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar skal gera tillögu til bæjarstjórnar um veitingu styrkja til bæjarlistamanns eða bæjarlistamanna, og skal við það miðað, að tillögur berist bæjarstjórn í maímánuði ár hvert. 

3. gr.
Menningar- og safnanefndnefnd skal auglýsa eftir  eða óska eftir rökstuddum ábendingum frá einstaklingum eða samtökum listamanna  um útnefningu bæjarlistamanns  Nefndin er þó ekki bundin af slíkum ábendingum. 

4. gr.
Þeir listamenn einir koma til greina við úthlutun styrkja, sem lögheimili eiga í Garðabæ og hafa haft þar fasta búsetu í a.m.k. tólf mánuði. 

5. gr.
Úthlutun starfsstyrks skal að jafnaði fara fram árlega. 

6. gr.
Styrkurinn skal nema þeirri fjárhæð, sem bæjarstjórn ákveður hverju sinni við gerð fjárhagsáætlunar. 

7. gr.
Bæjarstjórn áskilur sér rétt til þess að styrkþegi leggi fram greinargerð um ráðstöfun styrkjarins, verði eftir því leitað.  Greinargerðin getur verið í því formi, að styrkþegi leggi fram texta í rituðu máli eða flytji eða lesi upp verk í frumflutningi eða til frumbirtingar, allt eftir nánara samkomulagi við menningar- og safnanefnd hverju sinni.  Ekki skal gert ráð fyrir sérstakri greiðslu fyrir framlagningu eða flutning samkvæmt grein þessari, en styrkþegi heldur höfundarrétti sínum óskertum í samræmi við ákvæði laga um höfundarrétt. 

Samþykkt í bæjarstjórn 12. apríl 2012 

Hvatningarsjóður fyrir unga hönnuði og listamenn

Ungt listafólk í Garðabæ á aldrinum 15-25 ára getur sótt um styrk úr Hvatningarsjóði.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar kallar árlega eftir umsóknum frá einstaklingum og hópum á aldrinum 15—25 ára sem vilja auðga menningarlíf í Garðabæ.

Styrkir úr Hvatningasjóði eru veittir við sama tilefni og þegar bæjarlistamaður Garðabæjar er útnefndur.