Barnamenningarhátíð í Garðabæ
Barnamenningarhátíð í Garðabæ er haldin á hverju ári en þá er skólahópum boðið að taka þátt í fræðslu, skemmtun og sköpun í Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, Minjagarðinum á Hofsstöðum og á Garðatorgi.
Sýningar á verkum barna eru sett upp í Hönnunarsafninu og á bókasafninu og fjölskyldum er boðið að taka þátt á lokadegi hátíðarinnar.
Hátíðin var fyrst haldin vorið 2021 en frá 2026 verður hátíðin haldin að hausti.

Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.