Bókasafn Garðabæjar
Bókasafn Garðabæjar er almenningsbókasafn sem er öllum opið. Það er á tveimur stöðum í Garðabæ; aðalsafnið á Garðatorgi 7 og Álftanessafnið sem er rekið með skólasafni Álftanesskóla við Eyvindarstaðaveg.

Opnunartími
Mánudaga til laugardaga: 09:00 - 19:00
Sunnudaga: 11:00 - 15:00
Upplýsinga- og menningarmiðstöð
Nýr vefur Bókasafns Garðabæjar er í þróun og verður opnaður síðar á árinu.
Bókasafnið er upplýsinga- og menningarmiðstöð sem veitir aðgang að ríkulegu bókaúrvali, gögnum og miðlum til fræðslu og afþreyingar. Bókasafnið býður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá og stendur fyrir fjölda viðburða ár hvert.
Fjölbreyttir viðburðir bókasafnsins:
Aðstaðan
Gestir safnsins hafa aðgang að bókum og öðru efni til útleigu og þráðlausu neti á báðum söfnum. Á aðalsafni hafa gestir aðgang að tölvum, prentara, ljósritun, vínylprentara, þrívíddarprentara og saumavél. Á 2. hæð safnsins er lesstofa, þar eru nokkrir lesbásar, hópvinnuborð og nóg af innstungum fyrir fartölvur. Á bókasafninu er einnig næðisklefi sem gestir geta fengið afnot af endurgjaldslaust í allt að tvær klukkustundir í senn. Þó er nauðsynlegt er að skrá sig í afgreiðslunni eða á netfangið: bokasafn@gardabaer.is.
Bókasafn Garðabæjar
Staðsetning: Garðatorgi 7
Sími: 591 4550
Netfang: bokasafn@gardabaer.is
Vefur: Bókasafn
Álftanessafn
Staðsetning: Í Álftanesskóla, Eyvindarstaðarveg
Sími: 591 4560
Netfang: alftanessafn@gardabaer.is
Lifandi Bókasafn





Viðburðadagatal
Garðakirkja í 60 ár - Sögufélag Garðabæjar
Garðakirkja fagnar 60 ára afmæli frá endurvígslu kirkjunnar árið 1966 í tilefni af því verður fjallað um sögu þessa forna og merka kirkjustaðar.
Viðburðir26.03.2026Bókasafn Garðabæjar
fimmtudagur, 26. mars 2026
kl. 19:00
Páskaföndur
Páskaföndur á borðum í bókasafninu Garðatorgi kl.10 - 12.
Fjölskyldur geta föndrað páskakanínur og páskaunga úr papparúllum og lituðum pappír og skreyta með litum, fjöðrum, dúskum og augum.
Viðburðir30.03.2026Bókasafn Garðabæjar
mánudagur, 30. mars 2026
kl. 10:00
Páskaperl
Viðburðir31.03.2026Bókasafn Garðabæjar
þriðjudagur, 31. mars 2026
kl. 10:00
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.