Aðalskipulag
Aðalskipulag er skipulagsáætlun sveitarfélagsins þar sem fram kemur stefna bæjarins um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar á minnst 12 ára tímabili.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030
Nýtt aðalskipulag Garðabæjar var undirritað í byrjun maí 2018 og gildir til ársins 2030.
Aðalskipulagið er það fyrsta sem í gildi er fyrir sveitarfélagið eftir að Garðabær og Álftanes sameinuðust um áramótin 2012 og 2013.
Uppdrætti og greinargerð, ásamt breytingum sem gerðar hafa verið á Aðalskipulagi Garðavbæjar 2016-2030 má nálgast á Skipulagsvefsjá.
Gjaldskrá
Liður | 2012 (kr.) | 2025 (kr.) | Athugasemd |
|---|---|---|---|
Afgreiðslugjald (aðalskipulagsbreytingar) | 9,500 | 16,454 | |
Breyting á aðalskipulagsuppdrætti (1. mgr. 36. gr.) | 130,000 | 225,156 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (1. mgr. 36. gr.) | 120,000 | 207,836 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 36. gr.) | 60,000 | 103,918 | |
Umsýslu- og auglýsingakostnaður (2. mgr. 38. gr.) | 120,000 | 207,836 | Nýtt deiliskipulag |
Grenndarkynning – umsýslu- og auglýsingakostnaður (44. gr.) | 30,000 | 51,959 | |
Framkvæmdaleyfi – framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka | 110,000 | 190,516 | Lög um mat á umhverfisáhrifum |
Framkvæmdaleyfi – aðrar framkvæmdir | 65,000 | 112,578 |
Forsendur og skýringar
• Fjárhæðir miðast við byggingarvísitölu í janúar 2012 (112,3) og eru uppfærðar til janúar 2025 (194,5).
• Vinna samkvæmt reikningi byggir á áætlun skipulagstjóra og getur ekki verið hærri en samþykkt áætlun.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.