Afsláttur af gjöldum fyrir barnafjölskyldur
Barnafjölskyldur og tekjulágir foreldrar geta átt rétt á afslætti af daggæslu.
Systkinaafsláttur
Foreldrar með 2 eða fleiri börn hjá dagforeldri, í leikskóla eða á frístundaheimili fá systkinaafslátt á gjöldum. Það þarf ekki að sækja um afsláttinn heldur reiknast hann sjálfkrafa.
- 50% afsláttur fyrir annað barn.
- 75% afsláttur fyrir barn umfram tvö.
- Afslátturinn gildir fyrir eldra barnið eða elstu börnin.
- Afsláttur er veittur af grunngjaldi en fullt verð er greitt fyrir fæði.
Tekjutengdur afsláttur
Til að koma til móts við barnafjölskyldur með lágar tekjur býður Garðabær upp á tekjutengdan afslátt af gjöldum hjá dagforeldrum, leikskólum og frístundaheimilum. Afslátturinn er 40% af dvalargjaldi
Systkinaafsláttur helst óbreyttur þar sem allir foreldrar fá afslátt af leikskólagjöldum fyrir systkini.
Viðmiðunartekjur
- Einstaklingar: Lægri meðaltekjur en 856.000 krónur á mánuði.
- Sambúðarfólk: Lægri heildarmeðaltekjur en 1.049.000 krónur á mánuði.
Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu 3 mánuði þegar umsókn er send inn.
Umsókn um tekjutengdan afslátt
Forsjáraðilar með tekjur undir viðmiðunarmörkum sækja um tekjutengdan afslátt á Þjónustugátt Garðabæjar.
- Sækja þarf um afsláttinn fyrir 15. mánaðar hjá til að afsláttur reiknist í næsta mánuði á eftir.
- Fylgja þarf með yfirlit úr staðgreiðsluskrá sem sýnir tekjur síðustu 3 mánuði. Staðgreiðsluyfirlit eru aðgengileg á skattur.is.
- Endurnýja þarf umsóknina einu sinni á ári. Afsláttur er veittur til og með 30. júní og því þarf að sækja aftur um fyrir 15. júlí á hverju ári.
Tengt efni

Dagforeldrar
Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum.

Leikskólar
Leikskólinn er spennandi tími þar sem hlúð er að börnum með skapandi starf og leik.

Frístund
Nemendur í 1.–4. bekk geta tekið þátt í tómstundastarfi á frístundaheimilum við sinn skóla eftir að skóladegi lýkur.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.