Flýtingar og seinkanir
Viðmið um flýtingar og seinkanir barna milli árganga í grunnskólum Garðabæjar.
Flýting eða seinkun milli árganga
Ef foreldrar eða forsjáraðilar óska eftir flýtingu eða seinkun á milli árganga þarf að senda rökstudda beiðni til skólastjóra grunnskólans. Æskilegt er að beiðnin berist fyrir 1. febrúar á árinu sem óskað er tilfærslu frá hausti. Skólastjóri getur þó samþykkt að taka við umsóknum á öðrum tíma og setja þær strax í ferli.
Flýting á lokum náms
Samkvæmt grunnskólalögum er skólastjóra heimilt að útskrifa nemanda úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið. Skilyrði er að nemandinn hafi náð hæfniviðmiðum aðalnámskrár.
Óski foreldrar eftir flýtingu er það skólastjóri, með aðstoð skólaþjónustu, sem metur hvenær og hvernig flýtingin fer fram. Foreldrar sækja skriflega um flýtingu á lokum grunnskólagöngu nemanda til skólastjóra. Æskilegt er að ósk um flýtingu á lokum grunnskólanáms berist í lok 8. bekkjar.
Ferlið
- Skólastjóri fær umsögn frá starfsfólki skólans áður en hann tekur ákvörðun. Í umsögninni er farið yfir:
- Náms- og þroskastöðu nemenda, meðal annars hæfni út frá viðmiðum sem gilda um jafnaldra.
- Félagslega stöðu innan nemendahópsins.
- Hvort nemendaverndarráð styðji umsókn þína (við flýtingu eða seinkun milli árganga).
- Samskipti við börn og fullorðna (við flýtingu á lokum náms).
- Skólasálfræðingur metur vitsmunaþroska með viðurkenndu greindarprófi og skilar skriflegri greinargerð. Hann horfir líka til fjölskylduaðstæðna og metur félagslega færni, hegðun og líðan.
- Skólastjóri tekur endanlega ákvörðun byggða á þessum greinargerðum. Ákvörðun liggur fyrir innan 3 mánaða eftir að beiðni berst.
- Ef umsókn er samþykkt tilkynnir skólastjóri það í bréfi til forsjáraðila og sendir afrit til grunnskóladeildar.
- Ef skólastjóri hafnar umsókninni tilkynnir hann foreldrum eða forsjáraðilum barnsins það með rökstuðningi. Foreldrar geta tjáð sig um fyrirhugaða synjun. Ef ákvörðun um synjun stendur enn eftir það tilkynnir skólastjóri þeim það í bréfi með leiðbeiningum um kæruheimild til menntamálaráðuneytisins. Afrit af bréfi til forsjáraðila er sent til grunnskóladeildar.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.