Beint í efni

Inn­rit­un í grunn­skóla

Í Garðabæ velja foreldrar skóla fyrir barn sitt og bera ábyrgð á að innrita barnið í þann skóla sem þeir velja. 

Innritun í grunnskóla

Skólaárið 2026-2027
Innritun nemenda í 1. bekk (f. 2020) og 8. bekk (f. 2013) fór fram dagana 2.- 10. mars. 

Umsókn í grunnskóla


Innritað er í gegnum island.is og í þjónustugátt bæjarins er hlekkur á umsóknina á island.is. 
Athugið að nauðsynlegt er að innrita þá nemendur í 8. bekk sem skipta um skóla.

ATH: Vegna innritunar nemenda á vorönn 2026 skal hafa samband við skrifstofu þess grunnskóla sem barnið á að innritast í til að fá nánari leiðbeiningar.

Flutningur milli skóla innan Garðabæjar og námsvist utan Garðabæjar

Umsóknir um flutning á milli skóla innan Garðabæjar og námsvist utan Garðabæjar fer líka í gegnum umsókn í grunnskóla inni á island.is

Skráning vegna nemenda í 2.-9. bekk sem óska eftir að flytjast á milli skóla fór líka fram dagana 2.-10. mars.

Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í grunnskólum annarra sveitarfélaga og sjálfstætt reknum grunnskólum skólaárið 2026-2027 er til 1. apríl, sótt er um skólavist utan sveitarfélags í gegnum island.is.

Vakin er athygli á að umsókn fyrir nemanda sem stundar nám í grunnskóla utan Garðabæjar þarf að endurnýja fyrir hvert skólaár.

Nemendur sem búa ekki í Garðabæ

Skólastjórnendur grunnskóla í Garðabæ geta heimilað nemanda með lögheimili í öðru sveitarfélagi en Garðabæ skólavist í grunnskóla Garðabæjar enda sé nægjanlegt húsrými til staðar, ákvörðunin leiði ekki til viðbótarkostnaðar fyrir Garðabæ og fyrir liggi samningur við hlutaðeigandi sveitarfélag um greiðslu námskostnaðar.

Upplýsingar um persónuvernd og tengt efni

    Innritun í frístund

    Skólaárið 2026-2027

    Innritun á frístundaheimili

    Innritun þeirra barna sem óska eftir dvöl á frístundaheimilum Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla á næsta ári fór fram 2.-10. mars 2026. Umsókn um frístundaheimili er í Völu vetrarfrístund (einnig hægt að nálgast í gegnum þjónustugátt Garðabæjar). Sama gildir fyrir sérstakt frístundaúrræði Garðahraun sem er fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Mikilvægt er að sótt sé sem fyrst um dvöl á frístundaheimilum.


    Ef umsóknir fyrir næsta skólaár berast fyrir 15. júní fær barnið pláss á umbeðnu frístundaheimili. Umsóknir sem berast eftir þann tíma eru afgreiddar með tilliti til starfsmannahalds hverju sinni.

    Kynningar í grunnskólum

    Í Garðabæ velur forráðafólk í hvaða grunnskóla þeir senda barn sitt. Forráðafólki og væntanlegum nemendum gafst kostur á að koma í heimsókn í grunnskólana í Garðabæ frá 2. -10. mars á meðan innritun stóð yfir.

    Vinsamlega hafið samband við skrifstofur skólanna og bókið heimsókn sé óskað eftir því.