Tónlistarskóli Garðabæjar

Tónlistarskóli Garðabæjar
Kirkjulundur 11
210 Garðabær
Sími: 591 4500
Álftanesskóli við Breiðumýri
225 Garðabær
Sími: 591 4505
Netfang: tonlistarskoli@tongar.is
Um skólann
Nýr vefur Tónlistarskóla Garðabæjar er í þróun og verður tekin í notkun síðar á árinu.
Tónlistarskóli Garðabæjar er til húsa að Kirkjulundi 11 þar sem aðalskrifstofan er staðsett og við Breiðamýri í Álftanesskóla. Einnig er kennt í grunnskólum í Garðabæ.
Facebook síða Tónlistarskóla Garðabæjar - þar má sjá upplýsingar um tónleika og margt fleira.
Innritun
Til að fá skólavist í Tónlistarskóla Garðabæjar þarf lögheimili nemenda að vera í Garðabæ. Nemendur í framhaldsnámi og þeir sem stunda miðnám í söng eru undanskyldir þessari reglu en falla undir reglur jöfnunarsjóðs íslenskra sveitarfélaga um jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms.
Opnunartími
Skrifstofan Kirkjulundi er opin:
- Mán.–fimmtudaga: kl. 12 - 17
- Föstudaga: 9:30–13:30
Hlutverk og meginmarkmið
Hlutverk skólans er að stuðla að aukinni hæfni nemenda til að flytja, njóta og greina tónlist og jafnframt að gera þau að virkum hlustendum, auk þess að efla tónlistarlíf almennt.
Skólinn vinnur að þessum markmiðum með því að veita almenna tónlistarfræðslu. Nemendur fá meðal annars tækifæri til að:
- læra að syngja og leika á hljóðfæri.
- skapa sína eigin tónlist.
- taka þátt í fjölbreyttu samspili.
Námið er einstaklingsmiðað og leitast er við að kennsluaðferðir og viðfangsefni séu fjölbreytt og við hæfi hvers og eins.
Tónlistarnámið
Námsbrautir:
- Klassískar hljóðfæradeildir
- Klassísk söngdeild
- Rytmísk deild (djass og rokk)
Mikil áhersla er lögð á samleik og samsöng nemenda en í skólanum eru starfandi blásarasveitir og strengjasveit, ásamt ýmsum samspilshópum. Einnig er boðið upp á nám á píanó, fiðlu og selló samkvæmt Suzuki-aðferðinni.
Gjaldskrá
Liður | 2025/2026 (kr.) | 2026/2027 (kr.) | Munur (kr.) | Munur (%) |
|---|---|---|---|---|
Hljóðfæranám, hóptímar | 57,200 | 59,500 | 2,300 | 4.0% |
Hljóðfæranám – grunn- og miðstig, fullt nám | 132,100 | 137,400 | 5,300 | 4.0% |
Hljóðfæranám – framhaldsáfangi, fullt nám | 145,100 | 150,900 | 5,800 | 4.0% |
Söngnám – grunn- og miðáfangi, fullt nám | 132,100 | 137,400 | 5,300 | 4.0% |
Söngnám – framhaldsáfangi | 145,100 | 150,900 | 5,800 | 4.0% |
Suzuki nám | 117,000 | 121,700 | 4,700 | 4.0% |
Hljóðfæraleiga | 14,200 | 14,800 | 600 | 4.2% |
Forsendur og skýringar
• Systkinaafsláttur: 20% fyrir annað systkin og 30% fyrir þriðja systkin (miðað við næsthæstu/hæstu gjöld).
• Nám á fleira en einu hljóðfæri: 20% afsláttur af námsgjaldi á annað hljóðfæri.
• Gjalddagar: 1. október, 1. nóvember og 1. desember.
Var efnið hjálplegt?
Hvað þarf að laga?
Vinsamlegast tilgreindu hvað mætti fara betur.