Beint í efni

Bæj­ar­stjóri Garða­bæj­ar

Almar Guðmundsson er bæjarstjóri Garðabæjar. Hann tók við starfi bæjarstjóra 3. júní 2022.

Um Almar

Almar Guðmundsson hefur setið í bæjarstjórn Garðabæjar frá árinu 2014, í bæjarráði frá 2018 og var formaður fjölskylduráðs og öldungaráðs á síðasta kjörtímabili. Hann er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA gráðu frá London Business School.

Undanfarið ár hefur Almar starfað hjá Reiknistofu lífeyrissjóða þar sem hann leiðir vinnu við breytingar á rekstri hugbúnaðarkerfis í eigu lífeyrissjóða. Hann starfaði hjá Krít fjármögnunarlausnum og síðar hjá Kviku 2017-2020 en á árunum 2009-2017 var hann framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og hjá Samtökum iðnaðarins. Þar áður vann hann ýmis stjórnunarstörf hjá Íslandsbanka og síðar Glitni.

Almar er uppalinn Garðbæingur. Hann er kvæntur Guðrúnu Zoega og eiga þau fimm börn saman.

Samtal við bæjarstjóra

Íbúar, félagasamtök og rekstraraðilar geta óskað eftir fundi eða símaspjalli við Almar með því að hafa samband við Bæjarskrifstofur Garðabæjar.

Hægt er að hringja í þjónustuver Garðabæjar í síma 525 8500 eða senda póst á gardabaer@gardabaer.is með ósk um fund þar sem fram kemur nafn og erindi.

Garðabær auglýsir reglulega opna íbúafundi og viðtalstíma með bæjarstjóra.

Netfang Almars er almar@gardabaer.is.

Bæjarstjóri Garðabæjar - Garðabær