2. fundur
2. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.03.2026
Kl. 10:00 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2601207
01
Markarflöt 30 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Markarflöt 30. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2602054
02
Hegranes 35 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Hegranes 35. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2512239
03
Skerpluholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnorðaholts norður, sem nær til lóðarinnar Skerpluholt 2. Tillagan gerir ráð fyrir því að heimilt verði að gera ráð fyrir kjallara, þar sem að hæðarlega lóðar gefur tilefni til. Flatarmál kjallara má vera allt að 100 m2 og nýtingarhlutfall á lóð verður að hámarki 0,45 en byggður flötur á lóð 30%.
Einnig er gert ráð fyrir að svalir geti náð allt að 1 m út fyrir byggingarreit. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grnndarkynningar í samræmi við 44. gr sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Skerpluholts 1, 3, 4 og 5.
Málsnúmer 2601520
04
Stekkholt 18 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Stekkholti 18 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
Málsnúmer 2602328
05
Urriðaholtsstræti 5 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Urriðaholtsstræti 5 ásamt umsögn skipulagsráðgjafa.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.