9. (2204). fundur
9. (2204). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
10.03.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varamaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2410186
01
Skuldabréfaútboð Garðabæjar
Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir
Málsnúmer 1906092
02
Götulýsing í Garðabæ.
Egill Daði Gíslason, deildarstjóri umhverfis og framkvæmda og Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs fóru yfir stöðu götulýsingar í Garðabæ, endurnýjun lampa og áætlaðar framkvæmdir ásamt yfirliti yfir þróun kostnaðar við götulýsingu í Garðabæ undanfarin ár.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2601457
03
Garðatorg 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109 leyfi fyrir endurbyggingu göngugötu við Garðatog 3.
Málsnúmer 2509045
04
Stekkholt 8 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Armed Zogaj, kt. 010578-2059, leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu að Stekkholti 8.
Málsnúmer 2510424
05
Stekkholt 31 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 31.
Málsnúmer 2510425
06
Stekkholt 33 - Umsókn um byggingarleyfi.<br/><br/>
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 33.
Málsnúmer 2510426
07
Stekkholt 35 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 35.
Málsnúmer 2510427
08
Stekkholt 37 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 37.
Málsnúmer 2510428
09
Stekkholt 39 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 39.
Málsnúmer 2510429
10
Stekkholt 41 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Gráhyrnu ehf., kt. 610415-0320, leyfi til að byggja íbúð á tveimur hæðum í raðhúsalengju ásamt innbyggðum bílskúr að Stekkholti 41.
Málsnúmer 2601404
11
Leiðrétting tilboðstalna í verkið - Stækkun Tónlistarskóla.
Við yfirferð tilboða af hálfu VSB verkfræðistofu komu í ljós reiknivillur nokkurra tilboðsgjafa. Gerðar voru viðeigandi leiðréttingar á útreikningi tilboða sem innihéldu reiknivillur og nýr niðurstöðulisti sendur bjóðendum.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Stækkun Tónlistarskóla":
1. Aðalvík ehf., kr. 468.038.706, 89,0%.
2. Alefli ehf., kr. 523.954.439, 99,6%.
3. All Verk ehf., kr 477.224.364, 90,8%.
4. Atlas verktakar ehf., kr. 554.077.873, 105,4%.
5. E. Sigurðsson ehf., 492.212.181, 93,6%.
6. Eykt hf., kr. 561.470.947, 106,8%.
7. Húsameistari ehf., 608.873.560, 115,8%.
8. Íslenskir aðalverktakar hf., 622.837.123, 118,5%.
9. K16 ehf., kr. 529.803.345, 100,8%.
10. Landris ehf., kr. 539.499.153, 102,6%.
11. PK Verk ehf., kr. 593.844.284, 112,9%.
12. Sjammi ehf., kr. 499.997.404, 95,1%.
13. Stéttafélagið ehf., kr. 561.930.984, 106,9%.
14. Tindhagur ehf., kr. 652.983.592, 124,2%.
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 525.806.879, 100,00%, Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Aðalvíkur ehf., að fjárhæð kr. 468.038.706, (89,0% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2603065
12
Hönnun - Útboð - Hreinsun Gatna í Garðabæ 2026-2028.
Lögð fram útboðs- og verklýsing COWI Ísland ehf. f.h. Garðabæjar vegna hreinsunar gatna í Garðabæ 2026-2028.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2603092
13
Hönnun - Útboð - Þorraholt Yfirborðsfrágangur.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Þorraholt. Malbikun og yfirboðsfrágangur 2026":
1. Garðyrkjuþjónustan ehf., kr. 128.069.550, 98,64%.
2. Gleipnir verktakar ehf., kr. 118.000.00, 90,88%.
3. Fagurverk ehf., kr. 89.451.400, 68,89%.
4. Óskatak ehf., kr. 149.940.900, 115,48%.
5. Lóðaþjónustan ehf., kr. 127.407.455, 98,13%.
6. D. Ing verk ehf., kr. 118.764.000, 91,47%.
7. Gott verk ehf., kr. 100.021.400, 77,04%.
8. Stjörnugarðar ehf., kr. 122.182.700, 94,10%.
9. Eggert Skúlason ehf., kr. 121.421.292, 93,52%.
20. Jarðtækni og JJ pípulagnir, kr. 127.957.460, 98,55%.
11. Grafa og grjót ehf,. kr. 108.876.767, 83,86%.
12. EMKAN ehf., kr. 118.800.000, 91,50%.
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 129.838.300, 100,00%, Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Fagurverk ehf., að fjárhæð kr. 89.451.400, (68,89% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2512335
14
Lóð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum að samkomulagi milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Garðabæ fyrir allt að 100 ný rými.
Gert er ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimili verði reist á lóð að Vetrarbraut 19, en fyrirhugað er að húsnæðið á lóðinni verði byggt fyrir milligöngu sveitarfélagsins að undangengnu útboð. Framkvæmd útboðsins verði þannig í höndum Garðabæjar en fjármögnun þess af hálfu ríkisins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samkomulag og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2601547
15
Hjallastefnan, uppbygging á Vífilsstöðum.
Bæjarstjóri og sviðsstjóri Guðbjörg Linda Udengard sviðsstjóri fræðslu- og frístundarsviðs gerðu grein fyrir samkomulagi um við Hjallastefnuna um sameiginlegar áherslur, uppbyggingu og rekstur skólastarfsemi Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Markmið samkomulagsins er að kveða á um uppbyggingu, húsnæðis- og lóðamál milli aðila vegna skólastarfsemi Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samning og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2603078
16
Beiðni Sorpu bs. um afgreiðslu lánssamnings.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni stjórnar SORPU bs. um heimild til að fjármögnunar endurvinnslustöðvar vað Lambhaga með lánum hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Annars vegar er um að ræða lán skv. lánssamningi nr. 2603_17 að fjárhæð kr. 320.000.000. Lánið er verðtryggt með grunnvísitölu 668,3 stig og verðtryggðum vöxtum sem eru 2,5% og fastir allan lánstímann. Virkir vextir samningsins eru 3,9%.
Hins vegar er um að ræða lán skv. lánssamningi nr. 2603_18 að fjárhæð kr. 30.000.000. Lánið verðtryggt með grunnvísitölu 668,3 stig og verðtryggðum vöxtum sem eru 3,9% árlega og fastir allan tímann.
Málsnúmer 2603077
17
Bókun frá 624. fundi stjórnar SSH - Þjónustusamningur og samstarfssamningur vegna almenningssamgangna, dags. 04.03.26.
Lagt fram erindi Samtaka sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna þjónustusamnings sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. og samstarfssamning Strætó bs. og Almenningssamgangna ohf. Jafnframt eru lögð fram lokadrög framangreindra samninga.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi þjónustusamning og samstarfssamning og fela Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samningana fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2603088
18
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, 499 mál, dags. 05.03.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2603102
19
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505 mál, dags. 06.03.26.
Lagt fram erindi nefnda- og greiningarsviðs Alþingis vegna frumvarps til nýrra Sveitarstjórnarlaga.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að koma á framfæri umsögn Garðabæjar um frumvarpið, en frestur til umsagna er til og með 20. mars 2026.
Málsnúmer 2603019
20
Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga um boðun aðalfundar þann 20/3 ´26.
Lagt fram.