Beint í efni

37. fundur

04.03.2026
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

37. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Álftanesskóla

04.03.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varamaður
  • Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Anna María Skúladóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
  • Vera Rut Ragnarsdóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Edda Björg Sigurðardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2509268

01

Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025

Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar sem framkvæmd var frá 17. nóvember til 13. janúar sl. Niðurstöður eru mjög jákvæðar í öllum þáttum könnunarinnar. Skólanefnd er sérstaklega ánægð með jákvæða útkomu hvað varðar ánægju foreldra/forráðamanna með grunnskólastarf í bænum og þakkar stjórnendum og öllum starfsmönnum skóla ásamt skólaskrifstofu fyrir faglegt og metnaðarfullt starf.

Málsnúmer 2602473

02

Innritun nemenda í grunnskóla 2026-2027

Grunnskólafulltrúi sagði frá innritun í grunnskóla sem stendur yfir dagana 2.-10. mars. 328 nemendur fæddir árið 2020 eiga lögheimili í Garðabæ, munu hefja grunnskólagöngu haustið 2026. Nú er í fyrsta sinn innritað í gegnum Nemendagrunn sem er miðlægur gagnagrunnur sem heldur utan um skráningar nemenda í grunnskóla.

Málsnúmer 2602474

03

Kynning og samtal við skólastjórnendur í Álftanesskóla

Skólanefnd þakkar skólastjórnenda Álftanesskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju sinni með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti.